Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 25
F.V. — Hvað er til bóta? — Það þarf að ráðast í það af ákveðni að leysa brýnustu vanda- málin. Það má ekki taka 20 eða 30 ár, heldur verður að gerast á skömmum tíma. T.d. þýðir ekkert að bíða lengur með að leysa bíla- stæðavandamálið, það veröur að hefjast handa strax að byggja bílabeymsluhús. Vandamál fyrirtækjanna þarf að leysa bæði með því að draga úr kostnaði, þá á ég fyrst og fremst við kostnað vegna fasteigna, og eins með því að stuðla að því að viðskipti aukist. Viðskipti aukast fyrst og fremst með því að fleira fólk kemur í miðbæinn, því þarf aö auka þá starfsemi sem laðar að fólk. Þar á ég við veitingahús, fjölbreytta verslun og yfirleitt alla starfsemi sem hefur í för með sér samskipti milli fólks. í dag er hins vegar um 67% af öllu gólfr'ymi á Kvosarsvæðinu notað undir alls kyns skrifstofur og opinberar stofnanir. Ég er ekki að segja að engar stofnanir eða bankar eigi að vera í miðbænum, þvert á móti draga þær að mikið af fólki. Af- greiöslur þeirra eiga hiklaust að vera hér (í miðbænum), en bak- vinnan getur verið annars staöar. F.V. —Hvað um framtið miðbæjar- ins? — Þegar búið er að leysa brýn- ustu vandamálin, þ.e. búið að skapa rekstrargrundvöll fyrir fyrir- tækin og byggja bílageymsluhús, þá má fara að huga alvarlega að öðrum verkefnum. T.d. líst mér vel á að loka Laugaveginum og byggja yfir hann, a.m.k. á köflum. Fyrst yrði þó aö tryggja það að fólk gæti lagt bílum nálægt Laugaveg- inum og gengið þurrum fótum frá bílunum að Laugaveginum allan ársins hring. Til þess yrði að byggja bílageymsluhús einhvers staðar á milli Laugavegar og Hverfisgötu, t.d. bak við Lands- bankann að Laugavegi 77. Það sama má gera í Kvosinni, þ.e. byggja yfir Lækjartorg og Austur- stræti á smekklegan hátt og skapa þannig góða aðstöðu til verslunar og yfirleitt mannlegra samskipta 365 daga á ári. Ebba Hvannberg í versl. Hvannbergsbræðrum: „Ekki skynsamlegt að dreyfa versluninni” F.V. — Telurðu að Laugavegurinn eigi framtið fyrir sér sem aðalversl- unargata Reykjavikur? — Já, alveg tvímælalaust. Ég er ekki hrifin af áætlunum sem uppi hafa verið um að koma upp nýjum miðbæ í Kringlumýrinni. Ég held það sé ekki skynsamlegt að dreifa þessum fáu verslunum sem grundvöllur er fyrir á marga staði. Með því móti yrði hvergi almenni- legur miðbær. F.V. — En heldur þú að Laugaveg- urinn geti í framtíðinni tekið við auk- inni umferð, eða ert þú hlynnt því að loka honum fyrir bílaumferð? — Nei, ég vil ekki loka Lauga- veginum fyrir bílaumferð, a.m.k. ekki í náinni framtíð. Ég tel að Laugavegurinn anni á fullnægj- andi hátt þeirri bílaumferð sem um hann fer í dag. Ef bílaumferð yrði bönnuð, myndi það t.d. valda öldruðu fólki og fötluðum miklum vandræðum og myndi gera þeim erfiðara um vik að versla hér við Laugaveginn. Það þyrfti samt að huga betur að gangandi vegfar- endum, en gert hefur verið, og er t.d. nauðsynlegt að gera við gangstéttarnar, en þær eru orðnar mjög illa farnar. Einnig mætti breikka þær sumstaðar. F.V. — Hvað með skort á bílastæð- um? — Það er tvímælalaust skortur á bílastæöum og því má alls ekki taka stæðin hér með fram Lauga- veginum, heldur verður að leysa þau mál á annan hátt. Pétur Sveinbjarnarson í Ask: „Ekki tímabært að loka Laugavegi” — „Sú mikla eftir- spurn sem er eftir hús- næði við Laugaveginn sýnir og sannar að Laugavegurinn er enn eftirsóttasta viðskipta- gata borgarinnar. Hins vegar hefur aukið um- ferðarálag og bílastæða- skortur leitt til vaxandi erfiðleika jafnt fyrir þá sem reka þar fyrirtæki og viðskiptavini þeirra,“ 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.