Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 50

Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 50
stjórnun STJORNARNEFNDIN OG HLUTVERK HENNAR Grein eftir Eggert Ásgeirsson Fyrri hluti Ekki fer framhjá neinum að þáttur stjórnarnefnda, þ.e. stjórna, nefnda og ráða, er mikill í stjórnkerfi okkar. Hér er um mikilvæga stjórnunareiningu sem víða hefur verið rædd frá stjórnunar- sjónarmiði, en sem lítil skil hafa verið gerð hér á landi. Hér verður starfsemi stjórnarnefndarinnar tekin til umræðu og leitast við að komast að því hvort í þessu stjórnarformi leynist gallar og hvort eitthvað megi gera til að bæta hana sem stjórn- tæki. Árlega er gefinn út listi yfir nefndir og ráð ríkisins. í kjölfar útkomu hans spinnast umræður þar sem seta manna í nefndum er gerð tortryggileg þar sem einstaka menn sitja víða og hafa af því hærri tekjur en einhverjir áttu von á. Eins og frekar verður gerð grein fyrir síðar krefst stjórnarnefndin, ef starf hennar á að vera gifturíkt, manna með sérstaka hæfileika, glögg- skyggni og yfirsýn við að leysa mörg mál á stuttum tíma. Þess vegna er eðlilegt að trúnaðarstörf hlaðist á þá menn sem vænta má að komi aðgagni. Svona hefur þaó verið og mun verða um langa framtíð. Fyrir kemur að nefndir og ráð eru sett á fót til lausnar verkefnum þar sem ástæðulaust er að hafa slíkt form á. Þá gerist það einnig að menn sitja lengi í þeim sætum sem þeir voru skipaðir í og án þess að mögulegt sé, eða ástæða talin til. að skipta um menn. Þá reynist einnig örðugleikum bundið að leggja stjórnarnefndina niður. Listinn yfir nefndirnar og ráðin, sem áður var getið, sýnir okkur að með ólíkindum er hve vinsælt þetta stjórn- unarform er og að nefndirnar eru æði margar í ekki stærra þjóðfélagi. Þess vegna má spyrja hvort nefndarformið sé ekki óheppileg vinnueining, hvort við hreinlega höfum á að skipa nægi- lega mörgu og þjálfuðu fólki til að taka þátt í öllu nefndastarfinu og hvort við höfum ráð á þeim kostnaði sem af starfinu leiðir beint og óbeint. Þótt nefndir og ráð ríkisins séu mörg má geta þess að mikill fjöldi slíkra ein- inga starfar á vegum sveitarfélaga og hálfopinberra aðila. Allt gengur þetta á okkar sameiginlega starfsafl. ( sambandi við þetta vakna margar spurningar. Málið er yfirgripsmikið og verður því ekki gerð tilraun til að svara nema hluta þeirra. Jafnvel þar sem það verður reynt er heldur ekki til neitt ein- hlítt svar. Mesta þýðingu hefur að leitast verði við að koma á festu í starfsháttum stjórnarnefndarinnar, kenna þeim sem nálægt skipan hennar koma til hvers sé eðlilegt að ætlast af henni og kenna þeim sem í nefndunum vinna hvernig skipuleggja megi starfið til að árangur náist. Það er að sjálfsögðu erfitt þar sem margir koma við sögu, bæði þeir sem skipa nefndir, eiga hlut að tilnefn- ingu í þær eins og ekki síst þeir sem í nefndunum sitja. Þá eru að sjálfsögðu samstarfsmennirnir margir. Allir eru þeir hluti af sömu heildinni. Sennilega hófst ferill nefndarinnar á því að betur sjá augu en auga. Síðar fara menn að leitast við að fá ýmislegt Höfunaur greinarinnar Eggert Ásgeirsson var um árabil starfsmaður heibrigiseftirlfts og borgarlæknlsembættisins f Reykjavík. Sfðar tók hann við framkvæmdastjóm Rauða Kross íslands. Á vegum Alþjóðarauðakrossins vann hann að könnunarþjónustu f 7 löndum sunnanverðrar Afríku. Undanfartð ár hefur hann rekið ráð- gjafarþjónustu í Reykjavík, elnkum á sviði heilbrigðis- og féiagsmála. Nú síðast vann hann fyrir landlæknisembættið að úttekt á sjúkra- flutningum í landinu og hefur hún verið gefln út sem fylgirit 1, 1982 með heilbrigðisskýrslum og fæst í skrifstofu landlæknis. 46

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.