Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 51
„Er ekkl hægt að tá eltthvað með kaffinu?"
sérfræðilegt framlag frá nefndar-
mönnunum. Þá bætast kröfur lýð-
ræðisskipulagsins um að fulltrúar all-
mennings hafi áhrif á gang mála og
ákvarðanir er hann varðar. Enn bætist
það við að hópar, hagsmunaaðilareða
þrýstihópar telja nauðsynlegt að koma
ár sinni fyrir borð. Er þá stjórnarnefnd-
arformið einkar heppilegt til þess. Það
þarf ekki að gera miklar kröfur til full-
trúans, hann fær upplýsingarnar í
hendurnar á fundum og getur byggt
sína framtíðarafstöðu til mála á því efni.
Af þessari upptalningu má ráða að
með svo ólíkum markmiðum einstakra
nefndarmanna getur starf nefndarinn-
ar, ef ekki nefndarinnar sem stjórnun-
areiningar, siglt í strand. Jafnvel þótt
svo gerist ekki þarf ekki miklar hind-
ranir til að árangur takmarkist.
Því er ekki ástæðulaust að staldra nú
við og athuga sinn gang. Aðeins einn
getur haldið á pennanum í einu var
einhvern tíma sagt þegar rætt var um
stjórnarnefndina. Vinnan kemur að
sjálfsögðu niður fremur á einum en
öðrum. Því væri sennilega eitthvert
annað vinnuframlag hentugra í sumum
tilvikum.
Það heyrist hreint ekki svo sjaldan
að menn, jafnvel einmitt þeir sem sér-
staka hæfni hafa til nefndarstarfa,
segjast ekki vilja láta skipa sig í nefnd
þeir hafi hreinlega annað betra — frá
þeirra sjálfra sjónarmiði að sjálfsögðu
— við tímann að gera. Til að hægt sé
að koma góðri nefnd saman og fá
menn til að mæta á fundum er gripið til
þóknunar, sem að sjálfsögðu gerir það
líklegra en ella að menn láti undan, en
dregur þó að hinu leytinu einnig að
aðra, sem lítil ástæða getur verið til að
fá til nefndarstarfa.
Ekki skal inngangur hafður lengri en
snúið sér að öðrum mikilvægum þátt-
um þessa máls.
Kostnaður af
nefndarstörfum
Margvíslegur kostnaður hlýst af
47