Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Síða 53

Frjáls verslun - 01.03.1982, Síða 53
störfum stjórnarnefndarinnar svo sem eðlilegt má teljast. 1. Þóknun til stjórnarnefndar- manna. Þótt þóknunin sé nokkurtatriði í sambandi við störf stjórnarnefndar- innar er ekki ástæöa til að ætla að hún sé mjög veigamikiðatriði í sambandi við heildarkostnað af starfi nefndarinnar og verður því ekki gerö frekari skil hér. Aðeins er vísað til þess sem áður sagði um óbein áhrif þóknunarinnar. 2. Tími sem til nefndarstarfanna fer. Stjórnarstörf eru í vaxandi mæli unnin innan almenns vinnutíma enda þótt mörg þeirra, svo sem hjá sveitarstjórnum og að sjálfsögðu í félögum, falli utan vinnutímans. Tíminn sem til starfanna fer er því að miklu leyti lagður til af vinnuveitanda nefndarmannsins. Hann þarf einnig, ef vel er, að vinna að ýmislegri gagnasöfnum, lestri og skriftum, sem að sjálfsögðu ganga með ýmsum hætti á þann tíma sem hann hefur til þess að rækja aðalstarf sitt vel. Um leið og sú þróun hefst eru því í raun engin takmörk sett, hve mikið hægt er að ganga á aðalstarfið. Vinnuveitendum er erfitt um vik að setja skorður við slíkum frama og borgaralegri skyldu, jafnvel óbeinni upphefð fyrir fyrirtækið sjálft. 3. Tími starfsmanna sem stjómin sjált hefur yflr að ráða. Eins og áður var drepið á er frumvöxtur stjórnarnefndarinnar tilkominn vegna þess að stofnanir og fyrirtæki leituðust við að kalla til sín hæfileika, kunnáttu og þekkingu sem þeim stóð ekki til boða með öðrum hætti. Smám saman er hætt við að menn, ekki hvað síst þeir sem á hafa hlaðist „margvísleg trúnaðarstörf" eins og einu sinni var sagt í afmælisgreinum og minningarorðum, hætti að taka á sig vinnu utan fundanna og krefjast þess í stað aukinna, jafnvel mikilla undirbúningsstarfa af hálfu fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem í hlut á: — Minntu mig á fundinn — Sendu út dagskrá — Er ekki hægt að fá eitthvað með kaffinu Tilhneiging í þessa átt lætur lítið yfir sér i hverju einstöku tilviki. Samt sem áður getur hún smám saman valdið miklum kostnaði. Það krefst þess að starfsmenn vinni ekki aðeins efnistengd störf fyrir fundinn heldur fundartengd störf einmg, fyrir, meðan og eftir að fundinum er lokið. 4. Enn melrl fundir. Hver fundur getur af sér ef ekki er staðið á verði, aðra minni fundi, verkefni og vandamál. ( sjálfu sér geta þau verið nauösynleg frá einhverju sjónarmiði, en eru þó ekki alltaf meðal meginverkefna stofnunar- innar sem í hlut á eða meðal þess sem hafa þarf forgang. Getur verið örðugt fyrir starfsmenn fyrirtækja að standa gegn óskum stjórnarmanna í þessa átt, ekki hvað síst vegna þess að þeir sjálfir geta verið fundarglaðir. Oft er litið á stjórnarmennina sem yfirmenn starfs- mannanna, þótt í raun séu þeir það ekki. Peter Drucker, sá frægi rekstrar- fræðingur, segir á einum stað: Annað- hvort vinnur maður, eða hann er á fundi. Því má bæta hér við að hann hefur líka sagt að fundafjöldi bæri vott um óstjórn. Hér hefur verið rætt um þann tima sem fer í undirbúning fundarins sjálfs og kostar vinnu skrifstofuliðs. Miklu tímafrekari og kannski afdrifaríkari fyrir starfsemi stofnananna er gagnasöfnun og margvíslegur undirbúningur sem tekur verulegan tíma þeirra starfs- manna sem oft eru henni hvað verð- mætastir og verður því að nýta starfs- orku þeirra af mikilli gát. 5. Gagnaframleiðsla. Stjórnarmenn sem mæta á fundi einu sinni eða kannski tvisvar í mánuði hafa það á tilfinningunni að þeir standi illa að vígi gagnvart sérhæfðum starfsmönnum. Orðið „sérfræðingaveldi" er notað sem vígorð íbaráttunni milli hinna kjörnu og hinna ráðnu í samfélaginu. Hinir kjörnu kvarta yfir veldi sérfræðinga og leitast við að brynja sig með því að gerast sérfræðingar sjálfir. Þeir krefjast úttektar, greinargerða og fjölmargra gagna sem kosta mikið fé, vinnu og véla, Ijósritunar, prentunar, burðargjalda. Oft kemur krafan um valkostina fram á þeim tíma sem illa stendur á. Þarf því aukavinnu við að koma slíkum gögnum saman þegar barist er við að koma þeim frá fyrir áætlaðan póstburðartíma. Þá þekkist það að starfsmenn leitist við að vinna sig í álit með því að ausa gögnum yfir stjórnarnefndarmenn í von um einhver komi auga á áhugamál þeirra, kunnáttu og hæfileika. Gildrur Það sem hér hefur verið nefnt er meðal einkenna skrifræðisins: Byró- kratísk tilhneiging, stundum í takmörk- uðum tengslum við heidlarmarkmiðið stofnunar þeirrar sem í hlut á. Fyrir kemur að gangslítið starf fari í gang vegna þess að markmiðin eru óljós og ágreiningur um hvert stefna beri. Ef allur kostnaðurinn stuðlaði að bættum árangri væri allt í góðu lagi. Ekki er því alltaf að heiisa. Þegar á fundinn er komið eiga sér stað atvik sem hindra að árangur náist: — Gögnin komu ekki í póstinum fyrr en í gær svo ég hafði ekki tíma til að kynna mér þau. — Ég var veikur / í sumarleyfi / í út- löndum. — Máliðerof umfangsmikið og flókið til hægt sé að afgreiða það nú. — Við felum einhverjum stjórnar- mönnum að kynna sér málið vel og leggja nýjar tillögur fyrir næsta fund. Þannig má lengi telja upp það sem reynst getur gildrur framkvæmda og ákvarðana. Allar eiga þær sínar skýr- ingar og orsakir sem alls ekki er ástlða til að gera tortryggilegar eða halda að mönnum gangi illt til. Sannarlega getur verið um það að ræða að málið sé illa undirbúió og tillögur óljósar. Hins vegar væri mönnum hollt að staldra við öðru hverju og athuga sinn gang, verja hluta fundartímans til þess að ræða markmið stjórnarnefndarinn- ar og þær leiðir sem hún getur farið. Dæmi um stefnu Hér var í fyrra í heimsókn þekktur maður í hinum alþjóðlega fjármála- heimi. Hann á sæti i stjórn margra stórra fyrirtækja, þó hann eigi ekki í þeim hlut að heitið getur. Stórfyrirtæki keppa mjög eftir að fá til sín ráðholla menn, framsýna með mikla yfirsýn. Ég spurði hann hvernig starfið færi fram í slíkum stjórnum. Hann svaraði að um- fram allt væri þaö skemmtilegt. Það væri gert til þess að auðvelda mönnum að sjá mál frá ólíkum hliðum og láta gamminn geysa. Formsatriði væru í lágmarki. Megintilgangurinn er sá að þoka fyrirtækinu áfram, stuðla að vexti þess, sjá við hættum þeim sem fram- undan væru og styðja framkvæmda- stjórann til góðra verka. Ef skoðanir stjórnarmannanna mættuandstöðueðaféllu ígrýttanjarð- veg sagði hann að yfirleitt hættu menn í stjórn af eigin hvötum. Þá væri til- gangurinn ekki lengur fyrir hendi og starfsánægjan. Skoðun þessa fjármálamanns á að sjálfsögðu ekki allsstaðar við. Þó get- um við dregið af henni nokkurn lær- dóm. Auðvitað hafa menn komist að sömu skoðun í mörgum stjórnarnefnd- 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.