Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 57

Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 57
„Forráðamenn samtaka sveit- arfélaga í ýmsum landshlutum hafa að undanförnu komið á laggirnar skipulegu undirbún- ingsstarfi fyrir svæðisbundna ferðamálaþjónustu enda eru augu manna óðum að opnast fyrir því hvað ferðamálin geta orðið arð- vænleg atvinnugrein, ef vel er á málum haldið.“ Þetta sagði Birgir Þorgilsson, markaðsmálastjóri Ferðamálaráðs íslands í viðtali við Frjálsa verslun. Hann vitnaði til þess, að þá degin- um áður hefði hann verið við- staddur fund á Selfossi, þar sem ýmsir hagsmunaaðilar af Suður- landi voru saman komnir til að ræða stofnun Ferðamálasam- bands Suðurlands og var ákveðið á fundinum að skipa 5 manna ferðamálanefnd, sem annast skal undirbúning að stofnun sam- bandsins. Hjörtur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveit- arfélaga á Suðurlandi, er for- svarsmaður þessa starfs. Birgir Þorgilsson markaðsmála- stjóri Ferðamálaráðs íslands Heimamenn standa sjálfir undir framkvæmdum Ferðamálasamband Suður- lands verður opið öllum hags- munaaðilum og áhugafólki, og er fyrirhugað að framlög til sam- bandsins verði 1000, 2000 eða 5000 kr. frá hverjum aðila. Gert er ráð fyrir að nú þegar verði ráðinn ferðamálafulltrúi til starfa í 1 '/2 mánuð en honum er ætlað það hlutverk að feröast um landshlut- ann í sumar og safna gögnum um ástand ferðamálanna, hvað skorti og hvað fari úrskeiðis. Þessar upplýsingar munu síðan lagðar til grundvallar fyrir starfi ferðamála- nefndarinnar og fyrir stofnfund ferðamálasambandsins síðar á ár- inu. ,,í þessu sambandi er mjög at- hyglisvert," sagði Birgir Þorgils- son, ,,að menn gera sér grein fyrir að það þýðir ekkert aó mæna á ríkiskassann í von um fjárframlög. Aðilar heima í héraði eru sér með- vitaðir um að þeir verða sjálfir að standa undir nauðsynlegum fram- kvæmdum." Á Suðurlandi eru sem kunnugt er ýmsar þjónustustöðvar fyrir ferðafólk á fjölförnum stöðum. Öfl- ug ferðamálafyrirtæki stunda um- fangsmikla starfsemi í fjórðungn- um og má þar til að mynda nefna Austurleið og Sérleyfisbifreiðar Selfoss, Hótel Eddu og Valhöll á Þingvöllum. Ferðamálafulltrúi á Vesturlandi Uppbygging þessa ferðamála- starfs á Suðurlandi er mjög svipuð því sem ákveðið hefur verið hjá samtökum sveitarfélaga á Vestur- landi. Þau hafa nýlega auglýst eftir ferðamálafulltrúa til starfa í nokkra mánuði og var Benedikt Jónsson, yfirkennari á Laugum í Dalasýslu, ráðinn til starfsins. Þá munu ráða- gerðir uppi hjá Fjórðungssam- bandi Norðlendinga um ámóta ráðstafanir og sagði Birgir Þor- gilsson að þeirra væri von víöar á landinu á næstu misserum. „Þegar forystumennirnir í landshlutasamtökunum sjá tölur um atvinnutækifæri á ferðamála- sviöi opnast augu þeirra fyrir nauðsyn aðgerða," sagði Birgir. ,,Það er að eflast skilningur á þörf fyrir ferðamálafulltrúa í landshlut- unum ekki síður en fyrir nauðsyn iðnþróunarfulltrúa." Miklar beinar og óbeinar tekjur Nú er talið að um 5% af vinnuafli í landinu sé í störfum að ferðamál- um. Óbeinu áhrifin af greininni eru auðvitað langtum meiri eins og t.d. við matvælaframleiðslu og aðra þjónustu, sem nýtur góðs af viðskiptum við ferðafólk. Á Suður- landi er talið að beinar tekjur af ferðamönnum hafi numið 39 milljónum króna í fyrra og gisti- nætur verið um 65 þúsund á svæðinu. Því er spáð að árið 1990 verði gistinæturnar 97.500 og að ferðafólk muni verja 59 millj. króna á svæðinu. En hvert verður hlutverk ferða- málafulltrúans og hvar eiga menn fyrst að taka til höndum? Á að byrja á því að gefa út fallegan bækling eða líta gagnrýnum aug- um á ástandið eins og það er og stuðla að breytingum áður en lagt er út í meiriháttar sölustarfsemi? Við beindum spurningunni til Birgis Þorgilssonar. Gagnrýnin úttekt og útgáfustarfsemi Birgir: Það þarf í fyrsta lagi að gera athugun á ríkjandi aðstæðum og tillögur um úrbætur. Ferða- málafulltrúinn verður að vera á ferðinni og gefa góð ráð heima í héraði jafnframt því að stunda á- kveðna sölumennsku gagnvart ferðamálafyrirtækjum í höfuö- borginni. Hann þarf að segja til um ákveðnar úrbætur og mér dettur þá í hug saga, sem ég heyrði ný- lega af sölu veiðileyfa í silungsvötn í einum landshlutanum. Með því að leggja veg að vatnasvæðinu jókst sala leyfa úr 10% af heimil- uðum fjölda í 80—90%. Það eru um 1000 silungsveiðivötn í landinu og má með markvissum aðgerðum hafa af þeim mun meiri tekjur en orðið er. Þetta er aðeins lítið dæmi. Útgáfa kynningarrita er að sjálf- sögðu nauðsynleg. Þaö þarf hins vegar að hugsa dæmið til enda. Tilgangslítið er að útbúa bækling 53

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.