Frjáls verslun - 01.05.1982, Page 5
frjáls
verzlun
Sérrit um efnahags-, viðskipta-
og atvinnumál.
Stofnað 1939.
Útgefandi Frjálst framtak hf.
STJÖRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
RITSTJÓRI:
Magnús Hreggviðsson
SÖLU OG MARKAÐSSTJÓRI:
Sveinn R. Sveinsson
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI:
Ingvar Hallsteinsson
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
Auglýsingasími: 31661
LJÓSMYNDIR:
Jens Alexandersson
SKRIFSTOFUSTJÓRN:
Þórunn Þórisdóttir
Tímaritið er gefið út í samvinnu
við samtök verzlunar- og
athafnamanna
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300 — 82302
SETNING OG PRENTUN:
Prentstofa
G. Benediktssonar
BÓKBAND:
Félagsbókbandið hf.
LITGREINING A KÁPU:
Prentmyndastofan hf.
öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir
FRJÁLS VERZLUN
er ekki ríkisstyrkt blað
bréf frá
útgefanda
Tengslin efld
Það að Frjáls verslun hefur verið og kappkostað aö vera
málssvari verslunar og verslunarfólks hefur tæplega farið
framhjá neinum. Blaóið var stofnað og framan af gefið út af
samtökum verslunar- og verslunarfólks. Hin síðari ár hefur
Frjáls verslun þó verið blaó sjálfstæós fyrirtækis, Frjáls
framtaks, sem þó hefur viöhaldið tengslum og samvinnu viö
hin ýmsu samtök verslunar.
Nú hefur verið ákveðið að efla enn frekar þessi tengsl og
nýveriö undirritaði Frjálst framtak samstarfssamning við
Verslunarráð íslands og Verslunarmannafélag Reykjavíkur
um útgáfu Frjálsrar verslunar. Blaöið verður áfram eign
Frjáls framtaks en ofangreindir aðilar skipa þriggja manna
ritnefnd sem í eiga sæti þeir Kjartan Stefánsson frá Versl-
unarráöinu, Pétur Maack frá Verslunarmannafélaginu og
Magnús Hreggviðsson frá Frjálsu framtaki. Þess er vænst
að samstarfið muni veita atvinnurekendum og starfsfólki í
verslun greiðari aðgang aö Frjálsri verslun og um leið
styrkja grunn blaðsins og gera það aó hæfara tæki til
baráttu, upplýsinga og fréttamiðlunar til verslunarfólks.
Árangursrík áskriftasöfnun
Undanfarna þrjá mánuði hefur verið unnið að kappi að
sölu áksrifta á neytendablöóum Frjáls framtaks, Tískublað-
inu Líf, Barnablaðinu ABC og Bílablaðinu ÖkuÞór, Salan
hefur gengið vonum framar og til þessa dags hafa selst um
6.500 áskriftir. Líf viðheldur öruggri stöðu sinni sem mest
selda tímarit á íslandi en ÖkuÞór og ABC virðast ætla að
verða skæóir keppinautar.
Því er ekki að leyna að rekstrarerfiðleikar Frjáls framtaks
reyndu á þolrif áskrifenda, þar sem útgáfa allra blaðanna
varðlangtáeftiráætlun. Þegarég tókvið rekstrifyrirtækisins
í maí s.l. leit ég á það sem grundvallar skyldu við viðskipta-
vinina að standa við gefin loforð um tíðni og stundvísi í
útgáfu. Frá því í sumar hafa margar hendur lagst á eitt meö
þeim árangri að öll blöðin átta eru komin á eöa eru að
komast á upphaflega gerða útgáfuáætlun. Þannig skal það
vera í framtíðinni.