Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 8
Hver verður Seðlabankastjóri
Vilja Kristinn úr miðstjórninni
Eitthvað munu framsókn-
armenn vera farnir að end-
urmeta afstöðu sína til
Kristins Finnbogasonar og
bera margir ugg í brjósti yfir
því pólitíska fjaðrafoki, sem
yfir flokknum vofir vegna
fjármálaathafna krafta-
verkamannsins, sumpart í
skjóli Steingríms flokksfor-
manns. Því gerðist þaö ný-
veriðá miðstjórnarfundi, þar
sem Kristinn mun ekki hafa
verið mættur, að lagt var til
að honum yröi vísað út mið-
stjórninni. Þótt hljómgrunn-
ur hafi reynst talsverður fyrir
tillögunni taldi meirihlutinn
rétt að bíða frekari fram-
vindu mála.
Framsóknarmönnum í
Landsbankanum er ekki
einungis Ijóst að Kristinn
hafi þegió af þeim fyrir-
greiðslu, sem öllum öðrum
almennum viðskiptavinum
yrði fyrirmunað, heldur hafi
hann einnig prettað bank-
ann þannig að skuldaskil
vegna Iscargosukksins
verða mun verri og seinna á
ferðinni en bankinn ætlaöi,
ef þau þá verða nokkur.
Landsbankinn mun eiga
veð í sexu Iscargo fyrir
$300.000 skuldum og bak-
tryggingu ívíxli samþykktum
af kristni og Árn Guðjóns-
syni, stjórnarformanni ís-
cargo.. Tryggingarvíxillinn
er hins vegar dagsettur eitt
og hálft ár fram i tímann,
sem er sérstakt, því há-
markslengd annarra trygg-
ingarvíxla er eitt ár. Bank-
anum er orðið Ijóst aö hann
á enga von um á fá eyri út úr
sexunni, enda varft hægt að
ímynda sér annan möguleg-
an kaupanda en slökkviliðið
á Reykjavíkurflugvelli. Flug-
vélin hefur margoft verið
auglýst á nauðungarupp-
boði en því verió jafnoft
frestað, sem sjálfsagt er
þægilegt fyrir Landsbank-
ann. Það er slæmt fyrir
bankann aó veröa afhjúp-
aður á opinberu uppboði.
Landsbankinn hafði
vænst þess aö fá blóðpen-
ingana, sem Ar
arflug var neytt til að greiða
fyrir íscargo, en þeim
greióslum, sem inntar voru
af hendi í vor stakk Kristinn í
eiginn vasa. Málið er pínlegt
fyrir framsókn, því Kristinn
er varaformaður bankaráðs
Landsbankans og situr þar
sem fulltrúi Framsóknar-
flokksins.
Sagt er í bankakreðsum
að nú séu sumirað setjasig í
stellingar vegna þess að
eftirtvöárhættirGuðmundur
Hjartarson, Seðlabanda-
sjóri, því starfi vegna aldurs.
Ljóst er að þótt fáir verði út-
valdir eru margir tilkallaðir
og veltur á ýmsu hver bitann
kann að fá, og þá fyrst og
fremst á því hver pólitísk
valdahlutföll veröa ílandinu.
Verói Kratar ráðandi spá
flestir að Jón Sigurðsson,
þjóðhagsstjóri setjist í stól
Guðmundur. Jón er einnig
talinn njóta velvildar Tóm-
asar Árnasonar, núverandi
viðskiptaráðherra, en verði
framsóknarmenn í lykilað-
stöðunni vega fleiri þungt.
Má þar nefna Erlend Ein-
arsson, forstjóra SI’S og
Helga Bergs, bankastjóra
Landsbankans, sem erfitt
yrði að ganga framhjá sæk-
ist hann eftir starfanum. Þá
má nefna Halldór Ásgríms-
son, sem nú er formaður
bankaráðs Seölabankans,
en hann yrði að segja af sér
þingmennsku, sem ólíklega
gerðist. Hjá sjálfstæðis-
mönnum yrðu hins vegar
tveir efstir á blaði, þeir Sig-
urgeir Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri í Seölabankan-
um og Jónas Haralz,
bankastjóri í Landsbankan-
um.
Ballinu breytt
í AA fund
Það hefur lengi loðað við
blessaða sjómennina að
vera sukksamir þegar í land
kemur. I litlum kauptúnum
verður gjarnan breyting á
bæjarbrag þegar togarar og
önnur fiskiskip koma til
hafnar hlaðin fiski og gal-
vöskum sjómönnum. Áður
og jafnvel sumstaðar enn,
var sá háttur hafður á aö
þegar skip komu inn til
löndunar eða landlegu að
bregða upp balli. Oft voru þá
hörð átök margra varskra
drengja um fáar undirleitar
heimasætur. Hefur þetta
lengi verið þyrnir í augum
sjómakerra heimamanna,
en þeir hafa engin ráð fund-
ið. Tálknfyrðingarduttu hins
vegar ofan á lausn. AA
menn þar í plássi halda
reglulega AA fundi einu
sinni í viku og bregða svo
upp auka fundum hvenær
sem togari kemur til hafnar.
Segja heimamenn bæjar-
brag breyttan og bættan frá
skáldartímabilinu við þetta
framtak AA mannanna.
Olíufélagið hf
missir stór-
viðskipti
Þessa dagana er Olíufé-
lagið h.f. að missa einn
sinna feitu bita. Hitaveita er
að koma á Keflavíkurflug-
völl, og þar með hættir
Varnarliðið að kynda með
olíu, sem keypt hefur verið
hjá Olíufélaginu (Esso). Mun
sala þessi skipta tugum
milljóna á ári hverju, svo það
er ekki að undra þótt þeir
Olíufélagsmenn líti fram-
kvæmdir þessar heldur
óhýru auga.
Aðstoðarmenn
Gunnars
í útlegð
Eftir myndun rikisstjórnar
sinnar réði Gunnar Thor-
oddsen til sín tvo unga
menn þá Jón Orm Halldórs-
son, sem varð aðstoðar-
maður ráðherrans og Þórð
Friðjónsson til efnahags-
ráögjafar. Nú hillir undir
endalok stjórnarinnar og
eru ungu mennirnir farnir að
huga að nýju starfi. Hvorug-
ur mun leggja í að leita á ís-
lenskan vinnumarkað enda
sjá ungir menn þar kannski
ekki lengur glæsta mögu-
leika. Jón Ormur hefur því
sótt um hjá Evrópuráðinu er
Þórur hjá OECD.
Jón Ormur
Þórður
8