Frjáls verslun - 01.05.1982, Side 11
Með verslun og
vörslu á fjármagni
og eignum.
Kaupþing heitir nýtt
fyrirtæki, sem í október
hóf starfssemi sín á
þriðju hæð í Húsi versl-
unarinnar við Kringlu-
mýrarbraut.
Kaupþing erhlutafélag
í eigu átta einstaklinga,
en framkvæmdastjóri er
Ingimundur Einarsson.
Hann hefur síðastliðin
þrjú ár starfað sem bæj-
arstjóri á Siglufirði, en
áður gegndi hann starfi
fulltrúa bæjarfógetans í
Keflavík. Ingimundur er
borinn og barnfæddur
Siglfirðingur, en lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla
íslands. Við fengum
hann til að skýra örlítið
nánar frá starfsemi
þessa nýja fyrirtækis:
„Fyrirtækinu er ætlað
að helga sig eignamiðl-
un, hagfræði-, rekstrar-
og tölvuráðgjöf, ásamt
fasteigna- og verðbréfa-
sölu. Einnig bjóðum við
upp á fjárvörslu, sem á
erlendum málum hefur
verið nefnd depot. Þessi
þjónusta felst í því að við
veitum ráðgjöf til ein-
staklinga um hagkvæm-
ustu fjárfestingarmögu-
leikana hverju sinni og
tökum jafnframt að okkur
framkvæmd fjárfesting-
ar. Ennfremur höfum við
tekið upp leigumiðlun
atvinnuhúsnæðis og
virðist full þörf hafa verið
fyrir þá þjónustu."
Eru fordæmi fyrir sam-
einingu slíkrar þjónustu
hér á landi?
„Nei, það held ég ekki.
Yfirleitt hefur þetta allt
verið á sitt hverri hend-
Inglmundur Elnarsson
inni, en þó má segja að
Fjárfestingafélagið og
Hagvangur séu á svip-
aðri bylgjulengd."
Er grundvöllur fyrir
þessari fjárvörslu sem þú
nefndir áðan, liggur mik-
ið fjármagn á lausu hjá
einstaklingum?
„Já, ég held að það sé
víða til, en fólk virðist
ekki gera sér nægilega
vel grein fyrir hvernig
skynsamlegast sé að
fjárfesta hverju sinni.
Þessa stundina er hag-
kvæmast að binda fjár-
magn í spariskírteinum
ríkissjóðs og fasteigna-
tryggðum veðskulda-
bréfum. Ég hef trú á að
margir eigi eftir að not-
færa sér þetta, enkum
einstaklingar. Fyrirtækin
hins vegar munu aðal-
lega nýta sér aðra þætti
ráðgjafarþjónustu, til
dæmis á sviði hagfræði
og rekstrar."
En fasteignarsalan, er
hún með svipuðu sniði
og almenntgerist?
„Já, að mestu leyti. Við
erum með eignir á skrá
hjá okkur, en munum
leggja mikið upp úr ítar-
legri kaupendaskrá, þar
sem óskir viðskiptavin-
anna eru tilgreindar ná-
kvæmlega. Hyggjumst
við tölvuvæða þessa
starfsemi til hagræðing-
ar.“
Er þetta skemmtilegra
en bæjarstjórastarfið?
„Þetta er skemmtilegt
viðfangs. Hvort það
reynist skemmtilegra, er
engin reynsla komin á
enn, því þetta er svo nýtt
fyrir mér.“
Auk Ingimundar starfa
við Kaupþing 5 manns, 2
viðskiptafræðingar, 2
sölumenn og ritari.
Haukur Har-
aldsson og
Örvar Sigurðs-
son til Arnar-
flugs
Þann 1. desember sl. tók
Haukur Haraldsson við
starfi markaðsfulltrúa hjá
Arnarflugi. Mun hann m.a.
annast samskipti Arnarflugs
við ferðaskrifstofur, fyrir-
tæki og viðskiptaaðila inn-
anlands og vinna á þeim
vettvangi að uppbyggingu
og eflingu viðskiptasam-
band, jafnt vöru- og far-
þegaflugi.
Haukur hefur að baki
margþætta reynslu í mark-
aðssetningu og markaðs-
sókn. Hann starfaði áður
m.a. við gestamóttöku og
veitingasali Hótel Esju og
síðar við sölu- og markaðs-
mál hjá O. Johnson og
Kaaber hf. Síðustu fjögur
árin veitti hann Ráðningar-
þjónustu Hagvangs for-
stöðu og vann henni á
þeim tíma fastan sess og al-
menna viðurkenningu fyrir
örugga þjónustu.
Haukur er fæddur 15. 10.
1949. hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 1971 og
stundaði síðan nám við fé-
lagsfræðideild Háskóla (s-
lands. Hann er kvæntur
Oddbjörgu Óskarsdóttur og
eiga þau tvö börn.
18. nóvember síðastliðinn
tók Örvar Sigurðsson til
starfa hjá Arnarflugi og sér
hann þar um farskrádeild
fyrirtækisins. Örvar mun
m.a. undirbúa tölvuvæðingu
farskrádeildarinnar sem
innan tíðar fer í beint sam-
band við farskrártölvuna
Corda í Amsterdam, en hún
er ein fullkomnasta farskrár-
miðstöð heims og tengist
beint við flugfélög um allan
heim.
Örvar hefur sl. 16 ár starf-
að í farskrárdeild Flugleiða
og m.a. undirbúið þar IBM
spjaldakerfi og síðar bókun-
arkerfi Gabriel og Alex.
Örvar er fæddur 28. 10.
1945. Hann er kvæntur Erlu
Gunnarsdóttur og eiga þau
tvö börn.
Nordek
hugmynd
endurnýjuð
Man nokkur eftir Nordek,
efnahagsbandalagi Noröur-
landa, sem reyndar komst
aldrei af hugmyndastiginu?
Nú hefur Nils G. Asling,
fyrrverandi iðnaðarráðherra
Svíþjóðar ákveðið að vinna
aö stofnun norræns fjár-
hagsbandalags. Hefur hann
þegar oþnaö skrifstofu í
Stokkhólmi og myndaö
vinnuhóp stjórnmálamanna
og atvinnurekenda frá Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi.
Forstöðumenn norrænna
stórfyrirtækja hafa oft viðr-
að hugmyndir um norrænt
fjárhagsbandalag en einn
þekktasti talsmaður þessara
hugmynda er Pehr G. Gyll-
enhammer, forstjóri Volvo.
Er ásetningur Aslings að
vinna hugmyndinni fylgis í
vetur en markmiðið er að
koma á frjálsum fjármagns-
flutningi milli Noröurlanda
og sameiginlegum hluta-
bréfamarkaði.
11