Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 14
Framfærslukostnaður
Breyting frá fyrra ári (%).
Stig
1. Japan 4,3 16
2. V-Þýskaland 5,5 15
3. Holland 6,6 14
4. Sviss 6,7 13
5. Austurríki 6,8 12
6. Belgía 7,5 11
7. Danmörk 9,8 10
8. Bandaríkin 10,0 9
9. Svíþjóð 11,5 8
10. Finnland 11,8 7
11. Bretland 11,9 6
12. Kanada 12,5 5
13. Noregur 13,2 4
14. Frakkland 13,5 3
15. ítalía 18,8 2
16. ísland 50,9 1
Framfærslukostnaður hefur hækkað
minnst í Japan, ekki síst vegna hækkaðs
gengis yensins. V-þýskaland og Hollandi
hafa komist upp fyrir Sviss en við kúrum á
botninum — nema hvað.
Verg þjóðarframleiðsla
Breytingar frá 1980 (%).
Stig
1. Japan 3,2 16
2. Kanada 2,0 15
3. Finnland 1,9 14
4. Bandaríkin 1,4 13
5. ísland 1,3 12
6. Sviss 1,1 11
7. Frakkland 0,3 10
8. Noregur 0,2 9
9. Austurríki (0,1) 8
10. ítalía (0,2) 7
11. Belgía (0,3) 6
12. Svíþjóð (0,4) 5
13. Danmörk (1,0) 4
14. Holland (1,1) 3
15. V-Þýskaland (1,2) 2
16. Bretland (1,8) 1
Japanir hafa komist upp fyrir Finna en at-
hyglisverðast er að Bandaríkin hala sig
upp úr 15. sæti í 4. og Kanada úr 13. í 2.
Við hækkum úr 6. sæti í það 5.
þjóðarframleiðsla um 7,5% og t.d.
iðnaðarframleiðsla dróst saman
um heil 15%. Enn í ár er fjöldi
starfandi í iðnaði 15% minni en
1973.
Að ekki skuli ráða atvinnuleysi i
Sviss stafar af því að miklum fjölda
erlendra verkamanna var vísað
heim þannig að út fækkun sam-
svaraði 6,5% fækkun alls vinnu-
afls. Svisslendingar fluttu þannig
atvinnuleysið út til annarra landa
svo sem Ítalíu.
Hagvöxtur meiri
en áætlað var
Við vorum enn á árinu 1981
meðal þeirra landa, sem juku
heldur verga þjóðarframleiðslu.
Aukningin upp á 1,3% er heldur
meiri en áætlað hafði verið og ná-
um við því að halda svipaóri stöðu
á listanum og í fyrra, eða fimmta
sæti, þrátt fyrir 2,5% aukningu þá.
Almennt hefur dregið úr vexti
þjóðarframleiðslu, þó með nokkr-
um undantekningum, svo sem
Kanada, sem skýst upp úr 13. sæti
í annað. Er athyglisvert að aðeins
íslendingar hljóta skussaverðlaun fyrir
14