Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 17
Vinnuaflskostnaður atvinnuvega
Breyting frá fyrra ári (%). Mælt í sænskum krónum. 1. Holland (1.0) Stig 16
2. V-Þýskaland (0,5) 15
3. Danmörk 1.6 14
4. ísland 1,9 13
5. Belgía 2,0 12
6. Austurríki 2,4 11
7. Frakkland 2,8 10
8. Svíþjóð 3,1 9
9. ítalía 5,2 8
10. Sviss 6,8 7 '
11. Noregur 10,5 6
12. Finnland 12,1 5
13. Bretland 14,7 4
14. Kanada 23,9 3
15. Japan 25,1 2
16. Bandaríkin 25,4 1
Bætt gegi yensins gerir það að Japanir falla úr næst efsta sæti í næst neðsta. Á sama hátt lyftir gengislækkanir okkur upp ásamt Hollendingum, V-þjóðverjum og Dönum. Notkun á s.kr er til hagræðingar.
Skráð atvinnuleysi
Hundraðshluti vinnuafls
1. Sviss 0,2 Stig 16
2. ísland 0,4 15
3. Noregur 1,9 14
4. Japan 2,2 13
5. Austurríki 2,3 12
6. Svíþjóð 2,4 11
7. V-Þýskaland 5,0 10
8. Finnland 5,3 9
9. Holland 7,2 8
10. Kanada 7,4 7
11. Bandaríkin 7,7 6
12. Frakkland 7,8 5
13. Danmörk 8,6 3
15. Bretland 10,5 2
16. Belgía 11,4 1
Svissarar efstir eins og áður og við í öðru sæti. Röðin breytist hér lítið en atvinnu- leysið eykst víðast. Því er spáð að at- vinnuleysi haldi áfram að aukast.
vinnugreinum um 4%, sem þýðir
23% heildaraukningu. Við fjárfest-
um mikið, en í ár er reiknað með að
fjármunamyndun atvinnuvega
minnki um 4-5%.
• Atvinnuleysi hefur aukist frá
árinu á undan, nema í Kananda og
Sviss. Lítilsháttar aukning er á at-
vinnuleysi á íslandi en röðin er í
stórum dráttum sú sama og 1980.
• Við höfum ekki yfir neinu að
státa í verðlagsmálum frekar en
vant er. Við sitjum þar enn á botn-
inum með margfalda verðbólgu á
við aðra. Búast má við að tölur
okkar verði enn skammarlegri á
þessu ári á meðan heldur mun
draga úr verðhækkunum íflestum
öðrum löndum.
0 Breytingar á vinnuaflskostnaði
atvinnuveganna er mælikvarði á
breytingar á samkeppnisgetu á
erlendum markaði. Hún endur-
speglast meir að þessu sinni af
miklum sveiflum í gengismálum en
raunverulegum kjarabótum laun-
þega. Góður árangur okkar stafar
af veikum burðum íslensku krón-
unnar gagnvart flestum öðrum
myntum. Á sama hátt hefur gengi
ameríkudollarana og yensins
gagnvart evrópumyntum hrundið
Kanada, Japan og Bandaríkjunum
í neðstu sætin.
Reyndar má ræða það hvort
ekki bæri að snúa töflunni við.
Hækkun vinnuaflskostnaðar, t.d. í
Japan samhliða auknum útflutn-
ingi og bættum viðskiptajöfnuði er
afrek. Þetta þýðir ekkert annað en
það að japanskir verkamenn hafa
orðið efnaðri á árinu en bræður
þeirra erlendis. Því ætti kannski að
gefa fleiri stig fyrir hækkaðan
vinnuaflskostnað, sem stafar af
gengishækkunum.
17