Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 21
markaðnum á sjötta áratugnum og
fram á miðjan sjöunda. Þá
blómstruðu kaffistaðir á við veit-
ingahúsið að Laugavegi 28, Múla-
kaffi, Hressingaskálinn, Sælakaffi,
Matstofa Austurbæjar o.fl. Þetta
voru nokkurs konar kaffihús, sem
seldu svonefndan heimilismat á
matmálstímum. Fínu staðirnir voru
svo Grillið á Hótel Sögu, Naustiö
og síðan Hótel Holt og Hótel Loft-
leiðir.
Á þessu tímabili má segja að
stöðnun hafi ríkt á markaðnum,
a.m.k. miðað við þróunina í ná-
grannlöndum. Að vísu komu fram
brauðstofur svo sem Brauðborg
og síðan Brauðbær.
Svo var það uppúr miójum sjö-
unda áratugnum að veruleg
breyting átti sér þótt henni verði
vart líkt við byltinguna nú. Þá opn-
aði Magnús Björnsson Ask að
Suðurlandsbraut 14. í kjölfarið
opnuðu svo bræðurnir Jón og
Haukur Hjaltasynir Sælkerann í
Hafnarstræti og Bjarni Árnason
breytti síðar Brauðbæ í grillstað að
hætti hinna staðanna. Terían á
Loftleiðum varð einnig vinsæll
grill- og kaffistaður.
§ Gífurlegar sviftingar hafa átt sér
« stað í veitingarekstrinum í
= Reykjavík og nánasta nágrenní
05 síðustu tvö árin. Um tíma mátti
d það heita mánaðarlegur viðburð-
<2 ur að nýr matsölustaður af ein-
^ hverju tagi opnaði eða að eldri
g stað væri gjörbreytt. Hver staður
l_ reyndi að bjóða uppá eitthvað
sérstakt og fjölbreytni óx. Sömu-
leiðis hafa gæðin yfirleitt farið
vaxandi. Staðirnir keppast við að
auglýsa sig og greinilega hefur
vaxandi eftirspurn fylgt í kjölfar
vaxandi framboðs. Þó hefur eftir-
spurnin ekki verið nægileg í öllum
tilvikum og sumir staðanna hafa
gengið kaupum og sölum á
skömmum tíma, öðrum hefur ver-
ið breytt, sumir eru við það að loka
og dæmi eru til að staðir hafi ekki
náð að opna áður en fjárhags-
grundvöllurinn brast.
Heimilismatstaðir og
fínu staðirnir allsráðandi
Þetta eru mikil tíðindi ef litið er til
baka og þróunin í veitingarekstri í
borginni skoðuð nokkuð aftur í
tímann. Kyrrð og friður ríkti á
Líf og dauði í
veitingarekstri
Hverjir lifðu, — hverjir hurfu? Frjáls verslun kortleggur
einn mesta „búmbransann” — veitingareksturinn
►