Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 22
Eftir 1100 ára göróttan kost geta Reyk
30 nýjir veitingastaðir á 3 árum — byll
Hodakjúklingar tóku
við af hænunum
Meö tilkomu þessara staöa uröu
miklar breytingar í framleiðslustíl,
matargerö og allri umgjörð ódýrari
vietingastaöa. Með auknum
feröalögum íslendinga erlendis
haföi víðsýni mann aukist og var
hin nýju matargerðarlist tekið
tveim höndum. Hamborgarar fóru
aö tilheyra neysluvenjum margra,
þótt ísborg hafi boðið þá um
nokkra hríö áöur. Holdakjúklingar
komu þá fram í staö gamalla
hæna, sem gengu oft undir nafn-
inu: Kjúklingur. Nýstárlega fram-
reiddar nautasteikur sáu dagsins
Ijós viö góðar undirtektir, franskar
kartöflur uröu algengar meö mat.
Og svo aö sjálfsögöu kokteilsós-
an, sem umsvifalaust varö aö
þjóðarrétti og menn snæddu
meira að segja meö sviðum um
miöjar nætur upp í Geithálssjopp-
unni, sálugu.
Á móðurmáli fyrirmyndarinnar
má segja að þetta hafi verið „Fast
Food" staðir af hærri gæðaflokki.
Brátt urðu þetta traust fyrirtæki
enda eftirspurnin mikil. Bæði
hungraöi fólk í nýjungar og um
þetta leyti tók það aö færast í vöxt
að menn færu ekki heim til sín í
hádegismat og sömuleiðis tóku æ
fleiri konur aö vinna utan heimislis.
Gekk upp og ofan
að móta grillstaðina
Nokkrir staðir áttu þó minni vin-
sældum af fagna þótt þeir væru á
hinni nýju línu. Markús Alexand-
ersson stofnaði tvo grillstaði, sem
nefndust Grillinn '68 og '69. Annar
var í Austurveri og var ekki lengi
opinn, en hinn var í Suðurveri.
Sverrir Þorsteinsson keypti þann
stað síðar og rekur enn undir
nafninu Hlíðargrill. Þá var Nýgrill
opnað í Gullauganu á mótum
Fellsmúla og Síðumúla, en hann
gekk aldrei og var allt innanstokks
selt á uppboði eftir skamman
rekstur.
Tómas Guðmundsson keypti
Kokkhúsið við Lækjargötu, endur-
bætti það og rekur sem almenna
matstofu og kaffiteríu.
Um líkt leyti keypti Birgir Jóns-
son matstofuna Smárakaffi að
Laugavegi 178. Hann fór strax að
fikra sig inn á grill línuna, en síðar
fór hann að sérhæfa staðinn í
pizzum og enn síðar varð hann
með fyrstu veitingamönnum í
borginni til að bjóða upp á hrein-
dýrasteikur. Halti haninn er í full-
um rekstri og á Birgir staðinn enn.
Þá var veitingastofan Árberg
opnuð við Ármúlann undir miðjan
áratuginn og er reksturinn þar
svipaður og í Múlakaffi. Þar hafa
orðið eigendaskipti oftar en einu
sinni.
Um miðjan áttunda áratuginn
opnaói Esjuberg að Hótel Esju. Sá
„Hinn vinnandi veitingamaður". Nú eru kokkarnir ekki lengur faidir í eldhúsinu.
22