Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 23
ríkingar nú borðað sig sadda:
ng í matargerðarlist og verði
geysistóri staður verður einna
helst flokkaður í matstað með al-
mennan mat, kaffiteríu og veit-
ingastað í milliflokki. Þar hófust
léttvínveitingar eftir nokkurra ára
rekstur og sitthvað fleira hefur
verið gert fyrir staðinn fram á
þennan dag.
Skömmu síðar opnaði Gylfi
Guðmundsson Skrínuna vió
Skólavörðustíg og Kirnuna við
Laugaveg, þar sem Rauða myllan
var áður. Þetta voru grillstaðir með
tilbúin mat í hádeginu, en náðu
hvorugur umtalsverðum vinsæld-
um fyrr en nýjir eigendur tóku við
síðarog breyttu rekstrinum.
Bændur fara að föndra
við nýjar búgreinar
Bjarni Árnason opnaði svo grill-
staðinn Kránna við Hlemm, en er
um þessar mundir að breyta hon-
um í íburðarmikinn pizzastað.
Einnig opnaði hann Nessy við
Lækjatorg, sem sérhæfir sig í
kjúklingum og hamborgurum. Jón
Haltason rekur þann stað meó
Bjarna. Á meðan þessu fór fram
urðu Jón og Haukur Hjaltasynir að
rýma húsnæði Sælkerans í
Hafnarstræti. Áður en til þess kom
höfðu þeir opnað vandaóan veit-
ingastað ÍÓðali, en hann náði ekki
nægilegum vinsældum svo það
húsnæði var tekið undir diskótek
árið 1975. Eftir aö Sælkerinn lok-
aði, opnuðu þeir arftaka hans,
Nautið við Austurstræti, í sama
húsi og Óðal, en síðar var húsnæði
Nautsins einnig tekið undir diskó-
tekið.
Á þessum tíma þróuðust stað-
irnir heldur hægt, en nýjar bú-
greinar svo sem alifuglarækt og
nautakjötsframleiðsla styrktu
stöðu sína vegna frumkvæðis
þessara staða. Gömlu heimilis-
staðirnir héldu líka allgóðum við-
skiptum vegna aukinnar eftir-
spurnar eftir matsöluþjónustu al-
mennt.
Nýir réttir
í nýju umhverfi
Má segja að stórtíðindalaust hafi
verið á markaðnum um hríð. En
svo er það undir lok síðasta ártugs
að nýja línan fer að fæðast. Henni
er í stuttu máli lýst með því að gera
staðinn þægilegri en gömlu grill-
staðina, heimilislegri, og leggja
áherslu á nýja rétti svo sem pizzur,
fiskrétti og lambakjöt.
Askur opnaói þess háttar stað
að Laugavegi 28 árið 1977. Þar var
aðaláhersla lögð á lambakjötsrétti.
Guðni Erlendsson og Jakob
Magnússon opnuðu Hornið í
Hafnarstræti árið 1979, sem heim-
ilislegan stað með aðaláherslu á
nýstárlega fiskrétti. Þessir staðir
og þeir sem á eftir komu, hafa svo
allir fikrað sig í fótspor hvers ann-
ars til að geta boðið nægilega fjöl-
breytni. Nessy við Lækjatorg, í
eigu Jóns Hjaltasonar og Bjarna
Árnasonar á heima í þessum hópi
sem heimilislegur staður, en með
hraðari afgreiðslu.
Vínveitingaleyfi fást
fyrir millistaðina.
í janúar 1980 verða eigenda-
skipti að Aski þegar Magnús
Björnsson selur þeim Pétri Svein-
bjarnarsyni og Hauki Hjaltasyni
staðina. Þeir tóku sig til og gerðu
breytingar að Laugavegi 32 og
fengu þar vínveitingaleyfi. Það var
fyrsti staðurinn af svonefndum
milliflokki, til að fá leyfi til léttra
vínveitinga. Meö veitingastað í
milliflokki er átt við millistig á milli
grillstaða og fínustu veitingastað-
anna. Verðlagið er einnig þar á
milli. Pétur keypti svo hlut Hauks
ári eftir að þeir keyptu af Magnúsi.
Allt gengur af göflunum
Upp úr því gekk allt af göflunum
á öllum sviðum. Bjarni Alfreðsson
opnaói Versali í Kópavogi og fékk
vínveitingaleyfi, en staðnum var
lokað að ári. Ólafur Reynisson og
Haukur Hermannsson opnuðu
Hlíðarenda við Brautarholt þar
sem heimilismatstaðurinn Sæla-
kaffi var eitt sinn. Reksturinn þar
var stílaður á hæsta gæðaflokk
en milliverð. Þar voru vínveitingar.
►
23