Frjáls verslun - 01.05.1982, Síða 25
borgarastaður undir nafninu
Winnys. ÞórirGunnarsson eigandi
Matstofunnar fékk þar til liðs við
sig mann að nafni Tómas A. Tóm-
asson, sem síðar verður vikið að.
Ýmsar sjoppur fara líka að þróast
út í einhvers konar matsölustaði,
einkum með tilkomu örbylgjuofna.
Ask-pizzustaður er opnaður síð-
sumars ’80 í húsakynnum Dairy
Queen við Hjarðarhaga og er þar
með kominn fyrsti skyndipizza
staðurinn. Sama sumar hefur
Askur einnig rekstur tveggja veit-
ingabíla, sem einkum selja ham-
borgara. Eftir að Ásgeir Hannes
Eiríksson opnar pylsuvagninn í
miðbænum, spretta fleiri slíkir
upp, við Vesturbæjarsundlaugina,
Laugardalslaugina, síðar á
Granda og svo viö Breiðholts-
laugina. Gamli Vitabar við Vitastíg
verður að skyndihamborgarastað,
sem heitir nú Bingóbar.
Sérstaðir með einfalda
matseðla sanna
tilverurétt sinn
Pétur Sveinbjarnarson opnar
Askborgarann í Breiðholti í apríl
1980, eins konar skyndibitastað
en með sal fyrir gesti, sem vilja
snæða á staðnum.
Svo var það í mars 1981 að
Tómas A. Tómasson og Sigurður
G. Ólafsson opnuðu Tommaham-
borgara að Grensásvegi. Eins og
nafnið bendir til, sérhæfir staður-
inn sig í hamborgurum og fljótaf-
greiðslu, en slarkynni eru til staðar
fyrir gesti til þess að snæða á
staðnum. Með þessum stað hófst
skjótur frami Tomma á veitinga-
sviðinu. Um mitt sumar ’81 oþnar
hann annan Tomma við Lauga-
veg, eingöngu sem skyndibitastað
(ekki salur) og enn er Sigurður
með í ráðum. í febrúar í ár keypti
hann svo skyndibitastaðinn Borg-
arann við Lækjartorg ásam Ásgeiri
Hannesi Eiríkssyni, hlut í Pottinum
og Pönnunni mánuði síðar, opnar
Tommaborgarastað í skemmti-
staðnum Villta tryllta Villa og tvo
staði utan Reykjavíkur.
Ólafur Jónsson opnaði Pizza-
húsið við Grensásveg í júlí 1981 og
sérhæfir staðurinn sig algerlega í
pizzum. Þar er fljót afgreiðsla, en
jafnframt matsalur.
í ár opnaði svo Þórir Gunnars-
son, eigandi Matstofu Austurbæj-
ar Trilluna við Ármúla. Trillan var
byggð upp sem skyndibitastaóur
með fiskrétti, hamborgara og
kjúklinga, en með salarkynnum
fyrir gesti. Svipaða sögu er að
segja að Svörtu pönnunni, sem
Þórður Sigurðsson og Gísli Guð-
mundsson opnuðu í Tryggvagötu
við hliðina á ,,Bæjarins bestu,” fyrr
á árinu. Einn einn skyndibitastað-
urinn var opnaður í ár og nefnist
hann Brautargrill. Eigendur eru
Haukur Hauksson og Pétur
Stephensson. Það er skyndibita-
staður með svipaða rétti og stað-
irnir hér að framan, en býður ekki
upp á salarkynni eins og þeir.
Kaffiterían í Glæsibæ var öli
endurskipulögð nýverið sem mat-
staður með góðu rými fyrir matar-
gesti. Halldór Júlíusson rekur
hana undir nýja nafninu Uxinn.
Myndarleg kaffihús
líta dagsljósiö
Þegar hér er komið sögu hefur
ekki veriö minnst á ný kaffihús. Að
sjálfsögðu þjóna flestir nýju stað-
irnir líka hlutverki kaffihúss, svo
framboð á þeirri þjónustu hefur
einnig stóraukist. En þeim til við-
bótar má nefna ný kaffihús svo
sem Kaffi-Torg við Lækjartorg og
Mensuna, einnig við Lækjartorg.
Sæluhúsið við Bankastræti og
Nýja kökuhúsið við Austurvöll. Þá
er rétt að benda hér á Kaffivagn-
inn, sem hefur tekið miklum breyt-
ingum nýlega og er nú bæði kaffi-
hús og matsölustaður.
Ríkissjóður er umfangs-
mesti veitingaaðili á landinu
enda hafa allir ríkisstarfs-
menn rétt til aðgangs að
mötuneyti samkvæmt kjara-
samningum. Ella fá þeir
greidda matarpeninga.
Starfsmenn greiða hráefnið
en ríkið leggur aðra vinnu til.
Má áætla að kostnaður
skiptist til helminga. Hin
síðari ár hefur matargerð
mötuneytanna orðið mun
einfaldari en áður og margir
ríkisstarfsmenn nýta sér
ekki þessi réttindi.
Bjarni Árnason á Brauð-
bæ, Kránna v Hlemm og
Nessy við Lækjatorg með
Jóni Hjaltasyni. Þá á hann
Brauöbæjarsamlokur, sem
er umfangsmesta samloku-
framleiðsla á landinu.
Ömar Hallsson og Rut
Ragnarsdóttir á Rán við
Skólavörðustíg, keyptu
Naustið við Vesturgötu ný-
verið, reka Valhöll á Þing-
völlum á sumrin og yfirtóku
nýlega Manhattan í Kópa-
vogi, sem þau nefna Óðinn
Þór og reka sem sérsam-
kvæmisstað.
Flugleiðir reka eldhús f
Keflavík til matargerðar fyrir
flugvélarnar, svo og kaffi-
teríu þar. Þá rekur félagið
tvo til þrjá veitingastaði á
Hótel Esju og sama fjölda á
Hótel Loftleiðum auk veit-
ingastofu fyrir starfsfólk á
skrifstofunum í Reykjavík.
Veitingarekstur Flugleiða
heyrir undir Erling Aspe-.
lund.
KÓNGARNIR SJÖ
25
L