Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 35
Suður-Ameríku og Evrópu. Af
þessum orsökum þ.e.a.s. að
framleiðslan mun minnka í
þessum löndum á meðan
eftirspurnin mun aukast er gert
ráð fyrir því, að hér muni myndast
bil upp á 500 þús. tonn þegar árið
1985 innan Evrópu einnar. Þetta
bil yrði þess vegna að brúast með
því að flytja inn ál frá öðrum
heimshornum. I' Evrópu eru hins
vegar aðeins tvö lönd, sem eiga
ennþá ónýtta vatnsorku, en það
eru ísland og Noðrur-Noregur. Og
í álframleiðslunni er einmitt þessi
vatnsorka dýrmæt því
flutningsgjald álsins frá öðrum
heimsálfum er mjög dýrt eða um
5-10% af söluverði vörunnar á
Evrópu og Ameríkumarkaði. Hérer
komin ein höfuðröksemd fyrir því,
hvers vegna við eigum aö nýta
vatnsorku okkar fyrst og fremst til
álframleiðslu, því í henni eru
langmestar líkur á því að við það
fengjum við mest verð fyrir
orkuna."
Rannsóknum verði hraðað
Þetta eru vissulega sterk rök og
vex þeim fylgi nyrðra ef marka má
af nýjum ályktunum ýmissa mark-
tækra aðilla um framvindu stór-
iðjumála á Norðurlandi. T.d. segir í
ályktun Fjórðungsþingsins frá því í
sumar: „Þingið bendir á að orku-
iðnaður muni í vaxandi mæli verða
undirstöðuatvinnuvegur við hlið
hefðbundinna atvinnuvega í land-
inu. Staðarval ofkufreks iðnaðar
mun því hafa afgerandi áhrif á
byggðaþróun í landinu. Þingið tel-
ur eðlilegt að athugunum og
rannsóknum til undirbúnings
næsta stóriðjuvers verði haldið
áfram og hraðað. Sérstaklega
verði rannsóknum þessum beint
að Eyjafjarðarsvæðinu enda Ijóst
að það svæði er á ýmsan hátt
náttúrufars- og umhverfislega við-
kvæmara en önnur þau svæði,
sem Staðarvalsnefnd hefur nú
bent á. Jafnframt telur þingið að í
framhaldi af Blöndunarvirkjun
verði haldið áfram athugunum á
uppbygginu stærri iðnaðar sem
víðast á Norðurlandi, svo sem
trjávkoðverksmiðju á Húsavík."
En á meðan þessu fram vatt
Ýinsir telja eðlilegra að efla þann almenna iðnað, sem fvrir er, áður en farið er að tala um
stóriðju.
bilaleiga
f HÚSAVÍKUR ®Hi
Bílnuerkstæði - Ðekkjaþpnusta - Bensinafyreiðsla - Söhtökáli
t ... Jeppar-FöiksbUar
St s,,
Hlisavik
Æðarfossar
Frá Husavík er stutt
ti! ýmissa fegurstu staða t héraðinu.
Húsavík is surrounded
by the most beautifui jandscápe in Iceianti
CAtr RENTAL SERVICE
Octtiloss
Mývatn
Bílaleiga Húsavfkur
tCar Bentaf)
$imi 96,41888
Gren(aðarstaður
35