Frjáls verslun - 01.05.1982, Blaðsíða 41
vegi vissu fæstir aðrir en þeir, sem
þekktu til í veitingabransanum,
hver Tómas var. Blöðin uppgötv-
uðu þó fljótt að hér var á ferðinni
maður, sem þau höfðu gaman af
að segja frá og vissu að lesendur
höfðu gaman af að lesa um.
Tommi var að mörgu leyti öóru-
vísi, ýmis tiltæki vöktu kátínu og
hispurslaus og stundum yfir-
gengileg tilsvör geróu hann eftir-
sóttan til blaðaviðtala. Enda létu
þau ekki á sér standa. Tommi
fannn hvað blöðin vildu, lét þau
hafa það og fékk það borgað
margfalt aftur.
Umfjöllun mikilvæg.
Að fá umfjöllun í fjölmiðlum er
flestum fyrirtækjum mikilvægt.
Fyrir utan beint söluhvetjandi
auglýsingagildi, getur jákvæð og
etv. tíð umfjöllun í fjölmiólum
skapað fyrirtæki jákvæða ímynd
og stöðu. Til þess að koma nafni
fyrirtækis að í fjölmiðlunum eru
ýmsar leiðir aðrar en að forstöðu-
maður þess ..flippi út" í blaðavið-
tölum.
Samband við
blaðamann.
Forsvarsmaður fyrirtækisins,
sem telur sig þurfa oft að koma frá
sér efni eða vekja á annan hátt at-
hygli á sér eða starfsemi sinni gerir
klókt í að kynnast blaðamanni á
einhverju því blaði, sem hann telur
að nái best til þeirra, sem hann vill
eiga erindi við. Slík kynni geta
komist á með blaðamannafundi og
í kjölfar hans með því að fylgja
málefninu eftir með símtölum með
frekari upplýsingum við þann
blaðamann, sem mikilvægastur er
talinn vera. Einnig mætti reyna að
finna út hvaða blaðamaður fjallar
mest um það tiltekna efni, sem
fyrirtækinu er hugleikið, og bjóða
honum í heimsókn til að fræðast
um starfsemina og kynnast fólki.
Slík boð geta verið blaðamannin-
um jafn mikilvæg og fyrirtækinu^
þannig að um gagnkvæman
áhuga gæti verið að ræða.
Þegar kynni hafa náðst við
blaðamann er mikilvægt að því sé
viðhaldið með reglulegu sam-
Færði Hringnum 50
þúsund kr. að gjöf
KVENFELAGIÐ Hringurinn hefur
átt óteljandi stuöningsmenn og kon-
ur, þau 78 ár sem það hefur starfað
að hinum ýmsu líknar- og menning-
armálum.
Nú fyrir skömmu boðaði Tómas
A. Tómasson, eigandi veitinga-
staðanna „Tomma hamborgarar“,
formann Hringsins á sinn fund.
Tilefnið var að afhenda Barna-
spítalasjóði Hringsins kr. 50.000,-
að gjöf. Peningarnir eru ágóði af
rekstri barnahringekju í matstof-
unni að Grensásvegi 7. Tómas
keypti þetta leiktæki og ber allan
kostnað af rekstri þess, svo allt
það fé sem inn kemur rennur
óskipt í Barnaspítalasjóð Hrings-
ins. Stjórn félagsins þakkar þessa
höfðinglegu gjöf. Meðfylgjandi
mynd er tekin þegar formaður
Hringsins, frú Sigríður Johnson,
tekur við lyklinum að peninga-
kassa leiktækisins úr hendi Tóm-
asar A. Tómassonar.
(FréUatilkynning)
Sennilega hefur enginn atvinnurekandi fengið eins mikla umfjöllun í blöðum
undanfarin ár og Tómas Á Tómasson.
41