Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 13

Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 13
Texti: Anders Hansen innlent Islendingar leita utan til fjölþjóðlegra viðskipta Hin síðari ár og misseri hefur þess gætt í vaxandi mæli hér á landi, að íslendingar hugi að ýmsum möguleikum er standi þeim opnir erlendis. Hér er ekki átt við útflutning á vörum frá íslandi í venjulegum skilningi, heldur það að landsmenn eru að verða þátttakendur í fjölþjóðlegum eða alþjóðlegum við- skiptum þar sem litlu eða engu máli skiptir hvaðan viðkomandi menn eru og heimaland þeirra kemur að litlu eða engu ieyti við sögu í þessum viðskiptum. íslendingar framleiða sjónvörp Viðtal við Óla Anton Bielvedt forstjóra Nesco í Morgunblað- inu fyrir nokkru vakti mikla at- hygli, en þar er einmitt fjallað um þetta ,,strandhögg“ (slend- ingaáerlendamarkaði. Eftirað hafa rekið Nesco í nokkur ár hér heima, færði Óli Anton út kvíarnar, og tók að sér umboð fyrir belgískt stórfyrirtæki í Noregi og síðar Svíþjóð. Hafði Nesco um tíma mikil umsvif í löndunum báðum, en starfsemi þessari lauk hins vegar með deilum milli Nesco og belgíska fyrirtækisins, sem nú er verið aö útkljá fyrir dómstólum. Reynsla sú, sem Nescomenn öfluðu sér meó fyrrgreindri starfsemi varð á hinn bóginn til þess að áfram var leitað hóf- anna með starfsemi erlendis. Eftir nokkrar athuganir hóf Nesco síöan að framleiöa 13

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.