Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 17
Lánstraust íslendinga með
því minnsta í V-Evrópu
Lánstraust íslendinga á alþjóðalánamörkuðum er
slæmt og hefur heldur versnað á síðasta vetri. Sam-
kvæmt könnun tímaritsins Institutional Investor, sem
birt var í mars sl. njóta aðeins tvö lönd í Vestur-Evrópu
minna lánstrausts en ísland, það eru Portúgal og
Tyrkland.
Á lista fyrirtækisins, þar sem
eru 107 lönd er ísland í 39. sæti
og hefur reyndar hækkað upp
um tvö sæti frá síðustu könn-
un, en gefnum stigum hefur
fækkað á einu ári um 2,8.
Þessar upplýsingar tímarits-
ins skjóta nokkuð skökku vió
ítrekuðum yfirlýsingum yfir-
manna Seðlabankans um gott
lánstraust okkar á erlendum
lánamörkuðum. Reyndar má
segja aö í 39. sæti séum við
ofan við meðaltal þar sem
könnunin nær til 107 landa. En
við erum með 52,8 stig miðað
við meóaltalió sem er 42,2 stig.
Þau lönd, sem eru fyrir neðan
okkur eru hins vegar öll með
lægri þjóðartekjur á mann en
við og teljast öll til vanþróaðra
ríkja nema Austur Evrópulönd-
in og ísrael.
Hefur áhrif
á lánskjör
En hvaða máli skiptir láns-
traustið? Það getur skipt veru-
legu máli þar sem mat banka á
áhættu láns hefur áhrif á lána-
kjör. Við þurfum því líklega aö
borga lánadrottnum okkar
hærri áhættuþóknun en önnur
lönd Vestur-Evrópu. Fyrir
skulduga þjóð getur eins prós-
ent hærri vaxtaauki á grunn-
vexti, eins og tíðkast á mörgum
okkar lánum, þýtt umtalsverðar
upphæðir í aukaútgjöldum.
Það er margt sem getur baft
áhrif á lánstraust þjóðar. Und-
anfarin ár höfum vió sjálfsagt
fátt gert sem aukið hefur traust
erlendra bankamanna á end-
urgreiðslugetu okkar. Stjórn-
arfar hefur verið hér með ein-
dæmum ótryggt og markviss
efnahagsstefna hefur ekki ver-
ið til staðar. Verðbólga hefur
geysað, halli verið á viðskipta-
jöfnuði, miklar sveiflur í fram-
leiðslu og tekjum, einhæfni í
atvinnulífi. ör þensla ríkisgeir-
ans og minnkandi hagkvæmni í
rekstri ásamt mörgu öðru hefur
grafið undan íslensku krón-
unni, skapað vantrú á íslensku
efnahagslífi og stjórnarfari og
óvissu um framtíðarhorfur. Það
lánar enginn peninga þangað
sem svo er ástatt nema gegn
góðri greiðslu.
Institutional Investor gerir
þessa könnun á lánstrausti
þjóða tvisvar á ári. Allt að 100
leiðandi bankar á alþjóða-
markaði taka þátt í könnun
þlaðsins. Gefa þeir löndunum
stig frá núlli upp í 100, þar sem
hæsta talan er gefin því landi,
sem bankinn telur aó minnstar
líkur séu á aö standi við
greiðsluskuldbindingar sínar.
17