Frjáls verslun - 01.03.1983, Síða 43
eða findu þér annað starf”
í 55 ár hefur ameríska tímaritið TIME valið „mann
ársins“. Um síðustu áramót braut blaðið þessa hefð,
með því að velja „vél ársins“. „Vél ársins“ árið 1982
að mati TIME var TÖLVAN.
Það að TIME skyldi velja tölvuna sem vél ársins, er
aðeins eitt af fjöldamörgum atriðum, sem gefa til
kynna hinn gífurlega framgang tölvunnar, og þá sér-
staklega mikrótölvunnar, um þessar mundir. I
Bandaríkjunurn einum, seldust á síðasta ári yfir hálf
milljón míkrótölvur til skrifstofunotkunar. Á næstu
árum er búist við margföldun á þessari tölu.
„Don’t work harder — work
smarter"
Adam Osborne, bandarískur
tölvusérfræðingur, gefur
stjórnendur fyrirtækja eftirfar-
andi ráð: „Lærðu að nota
míkrótölvu, eða finndu þér
annað starf“. í framhaldi af
þessari ráðgjöf Osborne, hefur
setningin: „Don’t work harder
— work smarter", orðió eins
konar „heimspeki”, sem stöð-
ugt nær meiri útbreiðslu meóal
stjórnenda í hinum vestræna
heimi. Það er Ijóst að „heim-
spekin” og orö Osbornes
beinast fyrst og fremst til
stjórnenda í stórum og mið-
lungsstórum fyrirtækjum á al-
þjóðlegan mælikvarða.
Islensk fyrirtæki eru miklu
minni en samþærileg fyrirtæki
erlendis, og hafa oft aðra upp-
byggingu og önnur vandamál.
Þar af leiðandi mætti ætla að
míkrótölvan væri okkur ekki
eins mikilvæg. En, þaö er nú
öðru nær. Mikrótölvan hefur
gífurlega þýðingu fyrir lítil lönd
með lítil fyrirtæki, eins og ís-
land.
Lítil fyrirtæki verða aðrvæn-
legri en nokkru sinni fyrr
í fyrsta skipti í áratugi, sjá lítil
fyrirtæki fram á að geta keppt
við risastór fyrirtæki á stórum
og þróuðum mörkuðum. Hluti
af því, sem nefnt hefur verið á
ensku „Economics of scale”
(lausleg þýðing: hagkvæmni
stórrekstrar), hefur verið fjár-
hagslegur möguleiki stórra fyr-
irtækja til að nýta sér tölvu-
tækni út í ystu æsar. Þetta hafa
lítil fyrirtæki ekki getað, og hafa
þar af leiðandi stöðugt verið á
eftir hinum stóru.
Mikrótölvan breytir þessari