Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 53
t.d. meðan vélabúnaður er á leið
frá framleiðanda til notanda. í slíku
tilfelli væri hreint ekki víst að
nokkurn tíma kæmist upp um
verknaðinn, þar sem verksum-
merki þyrftu alls ekki að koma fram
af vinnuforritum eða geymdum
gögnum.7)
Hvaðertil ráða?
í mörgum tilfellum nær fremj-
andinn að þurrka út ummerki
verksins þegar honum þykir farið
að volgna undir sér. Við ,,réttar“
aðstæður er misferli auðvelt (
framkvæmd, uppgötvun hins veg-
ar erfið eða ólíkleg, og beint eða
óbeint tjón fórnarlambsins rýkur
upp úr öllu valdi. Það er því Ijóst að
fyrirbyggjandi aðgerðir einar
duga, að hindra, að misferli eigi
sér stað.
Ef reynt er að ráða í ástæður
þær eða réttlætingar, sem fjár-
dragari hefur uppi gagnvart sjálf-
um sér eða öðrum fyrir og eftir
uppgötvun, virðist óánægja með
starfið vera algeng, og sú tilfinning
að vinnuveitandi kúgi starfsmann
sinn eða misbeiti aðstöðu sinni
gagnvart honum. Á þetta síðan að
leiða til hefndar- eða endurgjalds-
viðhorfs. Ennfremur er hann
gjarnan sagður hafa á tilfinning-
unni að allir steli, það sé heimsku-
legt að reyna ekki líka að mata
krókinn, að litlar líkur séu á upp-
Ijóstrun, en þaðan af minni á kæru.
Og kann það síðastnefnda vissu-
lega að vera rétt.
Hvað þessi atriði varðar sér-
staklega ætti a.m.k. að nokkru leyti
að vera hægt að bregðast við með
skynsamlegri ráðningarstefnu og
stjórnun, og með því að stjórn-
endur og yfirmenn geri sér gren
fyrri því siðferðilega fordæmisgildi
sem þeirra eigin framkoma og
heildarstefna fyrirtækisins hefur.
Afsláttur eða undantekningar frá
heiðarleikakröfum geta skapað
andrúmsloft, sem fyrirtækinu
verður mjög skeinuhætt. 8) Það
hefur verið talið fjárdrögurum til
mikils léttis, hve oft sé fallið frá
kæru. Þetta er að sumu leyti skilj-
anlegt, því til að koma lagi á bók-
haldið eftir ósköpin og fá upplýst
hverju tjónið hefur numið, verður
oft samstarf fremjandans að koma
til. Verður samningsaðstaða hans
því ótrúlega sterk þegar endur-
greiðslu er krafist og kæru hótað.
Auk þess þarf kjark til að leggja
sþilin á borðið gagnvart viðskipta-
mönnum, og leyfa misferli innan
fyrirtækisins að komast í hámæli.
Hin hliðin á málinu er sú, að þá
fyrst fer viðskiptamaðurinn að
hugsa sig um tvisvar, þegar hann
uppgötvar, að reynt hefur verið að
þagga niður atferlið. Þar fyrir utan
stafar samfélaginu í heild hætta af
óupplýstum og ókærðum afbrot-
um.
Ekki verður fjárdráttur framinn
nema tvennt sé til staðar samtímis,
nefnilega viljinn til verksins og
tækifærið til þess. í gegnum ald-
irnar hafa myndast vissar skipu-
lags- og verklagsreglur innan
stofnana sem með verðmæti fara,
og meðal annars er ætlað að
draga úr áhrifum tækifærisþáttar-
ins. Má nefna sem dæmi um al-
þekkt atriði á borð við tvíhliða
bókhald, verkaskiptingu og deild-
arskiptingu. Almenntséð kann það
ekki góðri lukku að stýra, að sami
maður veiti innborgunum viðtöku
og heimili einnig útborganir, eða
gæti vörulagers og sjái líka um
talningu og birgðabókhald. í heild
má segja, að helsta öryggisþýðing
verka- og ábyrgðarskiptingar sé
að sammæli tveggja eða fleiri þurfi
til misferlis. Þannig vinnst tvennt. í
fyrsta lagi eru samsæri ólíklegri en
eins manns pukur, og í öðru lagi er
líklegra að upp um þau komist. 9)
Slík verka- og ábyrgðarskipting
er því meiri nauðsyn í tölvuvæddu
fyrirtæki. Til dæmis ætti verksvið
tölvara að takmarkast við venju-
lega notkun tölvunnar, og forritar-
ar ættu ekki að sjá um daglegar
færslur líka.
Tæknilegar öryggisráðstafanir,
sem byggðar eru inn í tækin og
forritin, gegna einnig mikilvægu
hlutverki, svo sem lykilorðið, sem
rita þarf inn áðuren vinna hefst við
tækið. Forrit er hægt að útbúa
með ýmis konar takmörkunarráð-
stöfunum, til dæmis þannig, að
fleiri en ein greiðsla til sama við-
takanda sé óframkvæmanleg yfir
viss tímabil, og finna má rökreglur,
sem hver færslutegund verður að
hlíta, eigi tölvan að taka hana
gilda. Sjálfvirk ,,logg“ geta tekið
við og geymt uþþlýsingar um
númer, tíma og tegund færslu,
hvaða lykilorð var í notkun, o.s.frv.
Líklega fer mikil vinna í það nú
orðið að finna upp og framkvæma
slíkar öryggisráðstafanir, og allar
hljóta þær að hafa einhvern
kostnað í för með sér, beinan eða
óbeinan.
í baráttunni gegn tölvumisferli
er engin stöðug víglína, en sú
vitneskja má ekki leiða til þess, að
ekki sé hirt um allar eólilegar var-
úðarráðstafanir. Þegar fjárdráttur
er framinn er alltaf hægt eftir á að
benda á skipulagsatriði eða ann-
að, sem vanrækt hefur verið. Hug-
kvæmni mannsandans er svo mik-
53