Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 56
tölvur
Tölvumarkaðurinn er flókinn vettvangur viðskipta.
Þegar talað er um tölvumarkað hér á íslandi er rétt að
gera sér grein fyrir því að hann er og verður sérís-
lenskt fyrirbrigði þótt hann verði að sjálfsögðu fyrir
áhrifum þeirrar þróunar sem á sér stað erlendis.
Tölvumarkaðurinn er heldur ekki alþjóðlegt fyrir-
brigði í þröngri merkingu, það gildir um hann eins og
um margar aðrar tæknivörur; hann skiptist í skýrt af-
markaða skika sem hver um sig hefur sín séreinkenni.
Þannig er hægt að tala um bandaríkjamarkaðinn og
evrópumarkaðinn sem tvo ólíka hluti á sama hátt og
hægt er að segja að markaðurinn í Svíþjóð á fátt
sameiginlegt með markaðinum á íslandi og t.d. er það
talin staðreynd að rússar séu áratugi á eftir banda-
ríkjamönnum á tölvusviðinu.
Hva mörg ár íslendingar eru á eftir á tölvusviðinu er
ekki auðvelt að segja, stundum er sagt að við séum
nokkrum árum á eftir nágrannaþjóðunum sem síðan
eru taldar nokkrum árum á eftir bandaríkjamönnum.
Alla vega er óhætt að fullyrða að þegar mikrótölvur
eru annars vegar erum við langt á eftir, enda auð-
skiljanlegt þegar höfð er í huga sú landfræðielga ein-
angrun sem við búum við og sú menningarlega ein-
angrun sem í því er fólgin að nota eigið tungumál fyrir
230 þúsund hræður.
íslenskur tölvumarkaður:
Frumskóga
því reiðubúnir til að greiða
fyrir kerfi og hugbúnað sem
þeir telja að reynsla sé fengin
fyrir. Þessir kauþendur ráða
jafnvel til sína kerfisfræðinga
og annaö fagfólk til þess aö
annast rekstur kerfa og gera
sér jafnframt grein fyrir því aó
til þess aó hægt sé að tryggja
fullkomið viðhald þarf að
greiða fyrir það töluverðar
upphæðir. Mikrótölvumarkað-
urinn er hins vegar markaður
amatöranna og kaupenda sem
ekki hafa efni á fullkomnum
búnaói, þar er barist um verð á
tölvum, jaöartækjum, forritum
og jafnvel viðhald
Tvískiptur markaður
íslenska tölvumarkaðinum
má auöveldlega skipta í tvo
hluta: Annars vegar er mark-
aöur fyrir minitölvur og hins
vegar markaður fyrir mikró-
tölvur. Fyrirtæki sem selja tölv-
ur skiptast yfirleitt á milli þess-
ara hluta en eru sjaldnast að
fást við sölu á bæði mini- og
mikrótölvum. Hver þróunin
verður í þessum efnum er ekki
gott aö spá um og ekki víst aö
þróunin fylgi sama farvegi hér-
lendis og hún hefur gert er-
lendis. Skipting markaðarins á
milli mini- og mikrótölva fer
eftir kaupendum.
kaupa minitölvur
leitt fyrir þeim
á notkun þeirra.
Þeir eiga sem yfir- / C {2 r: C2 4=4 D
og þéna r t2 O o o C3 0
Þeir eru # . t3 JEL £L ja-.O o