Frjáls verslun - 01.03.1983, Side 71
Emil Guðmundsson: Fjárfesting í aðstöðu fyrir ráðstefnuhald mun skila
góðum arði.
aöur sem býður ótæmandi
möguleika. En allt kostar þetta
mikla peninga og á þeim er
víða skortur um þessar mund-
ir.“
Hvað er það helst sem heill-
ar fólk til ráðstefnuhalds á ís-
landi?
Jsland er mjög óvenjulegt
land, fram hjá því getum við
ekki litið. Það þýðir aö útlend-
ingar eru almennt mjög
spenntir fyrir að koma hingað,
finnst það hálfgert ævintýri.
Sumir eru ef til vill búnir að
sækja ráðstefnur út um allan
heim og eiga aðeins eftir að
merkja við ísland á kortinu
sínu. Þetta fólk eigum við að
geta náð í.“
Eyða meiri fjármunum
En hvað er svona eftirsókn-
arvert fyrir íslendinga við að fá
slíka gesti?
„Ráðstefnugestir eru svolítið
sér á þarti og mjög æskilegir
gestir. Þetta er fólk sem dvelur
inni á hótelinu megnið af sínum
tíma hér. Það borðar hér allar
máltíðir, heldur stórar veislur
og eyðir mun meiri fjármunum
en hinn almenni ferðamaður.
Þetta skilar sér svo áfram út í
þjónustuhringinn, leigubílana,
skemmtistaðina, veitingahúsin
og svo framvegis. Sem sagt
þeir skilja eftir sig margfaldar
tekjur á við hinn almenna
ferðamann."
Þarf þá ekki að dekra sér-
staklega við þetta fólk?
,,Við leggjum okkur auðvitað
fram við að gera því sem best til
hæfis. Höfum yfirleitt sérstaka
móttökunefnd fyrir hópinn, þar
sem víkingaklæddir kappar
taka á móti honum. Við látum
fólkið finna að okkur er alls
ekki sama og viljum gjarnan
gera því allt til hæfis. Gestir
okkar hafa almennt veriö mjög
ánægðir og ekki bara meó
þjónustuna hér á hótelinu,
heldur einnig annaö sem þeim
þýðst bæði í Reykjavík og ann-
ars staðar."
Mætti ekki auka samvinnu
hótela í Reykjavík og úti á landi
til að laða slíka gesti að?
„Jú, sjálfsagt mætti sam-
vinnan vera meiri. Þaó má vel
vera að innbyrðis samkeppni
sé of mikil, en það er í þessari
grein sem öðrum, að hver
hugsar fyrst um sig og sína.“
Standast hótelin hér verð-
samanburð, t.d. við nágranna-
löndin?
„Við erum ekki óeðlilega
dýrir hér miðað viö höfurborg-
irnar á hinum Norðurlöndun-
um. Ráðstefnuverð er einnig
oftast eins konar milliverð.
Miðað við þjónustu. held ég
að við stöndumst fyllilega
samkeppni."
Er nægjanlegt framboð af
hótelrými hér í höfuðborginni?
„Já, á meðan nýting hótel-
anna er ekki betri en nú gerist,
er ástæðulaust að bæta hér
við. Nýtingin hefur alls ekki
verið nógu góð alls staóar og
almennt held ég að hún sé til
71