Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 83
bækur
Leiðrétt mynd af
Thatcher
Augu manna hafa í vaxandi mæli beinst að Bret-
landi. Flest bendir til þess að efnahagur landsins sé
nú að komast upp úr mestu lægðinni, sem hann hefur
lent í síðan í kreppunni um 1930. Nýlega kom út í
Svíþjóð bók þar sem skýrð eru grundvallaratriði
efnahagsstefnu Margaret Thatchers. Bókin nefnist
„Ett annat England“ og er höfundur hennar Janerik
Larson, ritstjóri blaðs sænska vinnuveitendasam-
bandsins, SAF.
Það sem greinilega hefur
hvatt Larsson til að skrifa þessa
bók er sú skakka mynd, sem
sænsk dagblöð hafa dregið
upp af efnahagsástandi Bret-
lands. Stefna stjórnar íhalds-
flokksins, eftir aö hann komst
til valda í maí 1979, hefur iðu-
lega verió skrumskæld í
sænskum blöðum, ekki síöur
en í íslenskum fjölmiðlum. Allt-
of mikið hefur veriö gert úr
peningastefnu, eóa monetar-
iskum þætti efnahagsstefn-
unnar, og önnur umfjöllun
pressunnar hefur verið í trölla-
sögustíl, að mati Larssons. I
bók sinni reynir hann að skýra
þá hugsun, sem liggur
,,thatcherismanum“ að baki.
Þaó fer ekki framhjá lesand-
anum að höfundur bindur vonir
um batnandi framtíð við leið-
toga breska íhaldsflokksins.
Leiöin er markviss stefna,
grundvölluð á nákvæmri skil-
greiningu á brestum velferðar-
ríkisins, sem að svo miklu leyti
er til af félagslegum tilfærslum
verðmæta.
Einkenni ,,bresku veikinnar"
á síðasta áratug þekkja allir.
Hvergi var um að ræöa fram-
leiðniaukningu í atvinnulífi,
stöðugur halli var á ríkisrekstr-
inum, ríkisgeirinn þandist
stöðugt út, tilhneiging til fjár-
festinga minnkaði, atvinnu-
tækin úreldust stöóugt o.s.frv.
Ástæðan var að dómi Larssons
víðtæk samstaða um ranga
stefnu. Bæði Verkamanna-
flokkurinn og íhaldsflokkurinn
ráku stefnu, sem fól í sér, skref
fyrir skref, frávik frá markaðs-
hyggju meö örlagaríkum af-
leiðingum.
Á 18. öld ríkti andi frjálslynd-
isstefnunnar í Bretlandi, þar
sem miðstýringar gætti lítt en
gróska var í atvinnuuppbygg-
ingu og tækniframförum.
íhaldsflokkurinn lagði grund-
völlinn að velferóarríkinu áriö
1832 þegar Reform Act var
samþykktur og í kjölfarið gætti
vaxandi miðstýringar og skrif-
finnsku. Stefnunni, sem þá var
mörkuö, hefur síðan verið fylgt
allt fram til 1979, með mismun-
Thatcher: Rauf samstöðuna um
velferðarríkið.
andi áherslum af nánast öllum
ríkisstjórnum, óháð flokkslit.
Rifjar Larsson upp ummæli
frjálslynds þingmanns frá
1890, ,,We are all socialists
now“.
Eftir að stjórn Edwards
Heath haföi mistekist og James
Callaghan lent íógöngum með
sína ríkisstjórn í lok síðasta
áratugs varð tækifæri til rót-
tækra umskipta í bresku
stjórnmálalífi. Eftir að hafa fyrst
náð völdum í flokknum náöu
Margaret Tatcher og fylgis-
83