Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1985, Side 89

Frjáls verslun - 01.03.1985, Side 89
einstaklingurinn fær aö njóta sin án óþarfa afskipta hins opinbera. Ef viö kunnum aö lifa saman i sátt og samlyndi, mun starfsamri þjóö, sem er opin fyrir nýjungum og þvi sem til framfara horfir, takast aö mæta framtíðinni af bjartsýni og meö jákvæöu hugarfari. Nýtt framfaraskeið að hefjast í iðnríkjunum — sagðiJdnas H. Haralz í mjög stuttu máli má segja, aö þau nýju viöhorf sem komiö hafi til sögunnar í umheiminum síðustu árin séu fólgin í meira raunsæi en áöur var ríkjandi. Þeirrar bjartsýni, sem var svo áberandi upp úr 1960 og þess ofmetnaöar og ofdirfsku, sem af henni spratt, gætir ekki lengur. í stað þess hefur komið raunhæf- ur skilningur á þeim kostum, sem völ er á, á þeim markmið- um, sem unnt er aö ná og á þeim tækjum, sem beita má meö árangri. Menn skilja nú betur en um all- langt skeiö aö einnig i allsnægta- þjóöfélagi nútímans veröur ekki ööru skipt en þvi sem aflað er. Hagvöxtur og framleiöni skipa þvi að nýju þann virðingarsess, sem áður var. Jafnframt gera menn sér Ijóst, aö eigi nýgræöingur aö dafna verður gamall gróöur aö víkja. Virkir markaöir, aukin sam- keppni og minni rikisafskipti eru talin skipta meginmáli. Hófsemi í stjórn efnahagsmála er önnur hlið þessara viöhorfa, hófsemi í vali markmiöa og hófsemi i beitingu þeirra tækja sem völ er á. Siðast en ekki síst fer fram endurmat á hlutverki rikisins i atvinnu- og vel- feröarmálum. Leitaö er nýrra leiða til aö veita þá þjónustu og sjá fyrir þvi öryggi, sem velferöarrikiö haföi tekiö sér á heröar. Þessara viöhorfa og þessarar viðleitni gætir hvarvetna i þeim löndum, þar sem við þekkjum vel til, þótt í mismunandi mæli kunni aö vera. Enn athyglisverðara er þó, aö þeirra viröist gæta án verulegs til- lits til þess, hvaöa stjórnmála- flokkar fara meö völd i þessum löndum. I nýlegu blaöaviötali seg- ir franski forsætisráðherrann, sósialistinn Laurent Fabius, aö heimurinn taki örum breytingum og eigi Frakkar aö vera i farar- broddi meöal þjóöanna veröi þeir aö laga sig aö breyttum aöstæö- um. Á þessu hafi orðið bið. Aölög- unin feli í sér mikil efnahagsleg og félagsleg vandkvæöi, en átakinu megi ekki lengurfresta. Ég vil Ijúka þessu yfirliti um tengsl islands við umheiminn meö þvi aö gera nokkra grein fyrir þeim viöhorfum, sem mér viröast nú blasa við okkur íslendingum. Svo er aö sjá sem nýtt framfara- skeið sé aö hefjast í iönríkjum heimsins, hagvöxtur muni veröa álitlegur og alþjóöaviöskipti vax- andi. Jafnframt gerast þær um- breytingar sem eru snar þáttur hagvaxtar, nýjar atvinnugreinar vaxi fram en aörar dragist saman, ný fyrirtæki veröi til en önnur hverfi. Þaö er ekki heldur annaö aö sjá en aö horfur þróunarland- anna fari batnandi. Skuldakrepp- an hefur reynst viðráðanleg og hagvöxtur hefur víöa tekiö viö sér, ekki sist á grundvelli ört vaxandi útflutnings. Þessar aöstæöur eru okkur Islendingum vissulega hagstæöar. Á hinn bóginn er sér- staða okkar vegna umráða yfir auölindum lands og sjávar alls ekki sú, sem við á timabili geröum okkur i hugarlund. Samkeppni á útflutningsmörkuöum er hröö og orkuverð fer lækkandi en ekki hækkandi. Aö þvi leyti eru ytri aö- stæöur kröfuharðari en við hefð- um bæöi taliö og óskaö. Hvers er þá þörf af okkar hálfu? Þaö er þörf á því raunsæi og þeim skilningi, sem nú gætir aö nýju i öörum löndum. Þaö er umfram allt þörf á skynsamlegu mati á tengslum okkar við umheiminn. íslandssagan fylgir ekki sínum eigin brautum, óháö mannkyns- sögunni. Viö getum ekki fylgt efnahagsstefnu, sem brýtur i bága viö stefnu annarra þjóöa. Viö getum ekki lifaö viö verð- bólgu, sem er langt umfram þaö sem er í viðskiptalöndum okkar. Viö getum ekki haldiö raunvöxt- um, sem eru allt aðrir en annars staöar tiökast. Viö getum ekki verndað atvinnulífið fyrir um- breytingum. Viö getum ekki hald- iö uppi sivaxandi opinberri þjón- ustu með sama hætti og áöur hefur veriö. Við getum ekki hafn- aö nánum samskiptum viö aörar þjóöir i atvinnurekstri jafnt sem viðskiptum. Í staö þess aö byrgja okkur inni verðum viö að gefa lífs- anda loft. I upphafi kvæöisins „Væringj- ar“ kemst Einar Benediktsson svo aö oröi: 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.