Frjáls verslun - 01.04.1985, Side 16
nokkru hærri en flugmanna og
hafa elstu þotuflugstjórarnir
kringum 120 þúsund krónur á
mánuði. Laun flugmanna eru um
80% af launum flugstjóra miðað
við sama starfsaldur.
Áður fyrr voru laun flugmanna
Flugleiða misjöfn eftir vélateg-
undum og var þá yfirleitt miðað
við stærð þeirra. Þannig hækk-
uöu laun flugstjóra á DC-6 vél-
unum um 10% þegar þeir tóku
aö fljúga fyrstu þotu Flugfélags-
ins, Gullfaxa árið 1967. Allt frá
árinu 1968 hafa flugmenn viljað
koma á launajöfnun innan Flug-
leiða, þannig að flugmenn hefðu
sömu laun án tillits til hvernig
vélategund þeir flygju. Nú eru
greidd sömu laun fyrir flugmenn
á DC-8 þotu og Boeing 727 þotu
og á næstu tveimur árum eiga
laun flugmanna á Fokker vélun-
um að hækka til jafns viö laun
hinna.
Eins og áður sagði eru byrjun-
arlaun flugmanna Flugleiða nú
kringum 50 þúsund krónur, þ.e.
eftir nokkurra mánaöa reynslu-
tima á lægri launum. Flugstjóri á
Fokker með 17 ára starfsaldur
hefur 96.700 krónur og flugmað-
ur á þeirri vél 80% af þvi og þotu-
flugstjóri sem kominn er á hæsta
starfsaldur getur náð kringum
120 þúsund krónum.
Þetta eru föst mánaðarlaun og
hin sömu hvort sem flogið er
virka daga sem helga, nótt eða
dag. Vakttimi flugmanna er allt
að 175 stundir á mánuði og flug-
timi þeirra 85 klukkutimar á
Fokker á vetri og 95 á sumri, en
85 á þotu á sumri og 75 á vetri.
Lengstur flugtimi i senn á þotu
má vera 10 klukkustundir og
flugmenn á Fokker mega lenda
átta sinnum á dag miöað við að
heildarflugtiminn sé ekki meiri en
fimm og hálf klukkustund.
Aðrar greiðslur
Dagpeningar eru greiddir flug-
mönnum i innanlandsflugi, og i
millilandaflugi fá flugmenn á leið
til Evrópu 53 dali fyrir heilan dag
og 26,5 dollara til kaupa á fæði
fyrir hálfan dag, sem oftast er á
þessum styttri leiðum. Flugmenn
i Amerikuflugi fá 78 dollara á dag
og standa þvi straum af fæðis-
kostnaöi.
Sem fyrr segir fá flugmenn
greidd föst mánaðarlaun án tillits
til þess hvort vinnuskylda þeirra
er fullnýtt eða ekki og ekki skiptir
máli hvort vinna þeirra fer fram á
virkum degi eða fridegi. Orlof
þeirra eftir 10 ára starf er 37
virkir dagar alls og veröa þeir að
taka hluta þess yfir vetrartimann
eða 20 virka daga. Þá fá flug-
menn nú greiddan bilastyrk og
nýlega hefur verið samið um að
vinnuveitandi greiði hluta af
simakostnaöi, þ.e. fast afnota-
gjald.
Vera má að sumum þyki 175
klukkustunda vaktskylda á mán-
uði ekki ofraun og að það sé ekki
vinnuþrælkun að fljúga 75 til 95
16