Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1985, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.04.1985, Blaðsíða 43
sæmilega vel opna glugga fyrir, þá galopnaðist allt þarna til flestra átta. Ég er sannfærður um, að þær nýju brautir, sem Hafskip hefur troðið undanfarin misseri i alþjóðlegu starfi, eiga eftir að skipa veglegan sess i is- lenskri atvinnusögu. Og nú ertu aftur kominn i húsið við Klapparstíginn sem þú hefur áður starfað í við önnur verkefni. -Já, Skrifstofuvélar tóku við þessu húsnæði eftir að Biskups- stofa flutti i Suðurgötuna. Hér á fimmtu hæðinni erum við með skrifstofuna, á annarri hæð eru kerfisfræðingarnir, en á Hverfis- götu 33 eru aðalstöðvarnar, verslunin, sölumenn og þjón- ustudeildin, sem reyndar er einn- ig i fleiri húsum hér i kring. Fyrir- tækið er því eiginlega dreift i nokkrum húsum hér á horni Klapparstigs og Hverfisgötu. Það er hins vegar framtiðarmarkmið að flytja allt undir sama þak. Hvernig er að taka við starfi í þessu fyrirtæki? -Það leggst mjög vel í mig. Hér starfa u.þ.b. 60 manns og mér finnst það mikil áþyrgð að verða oddamaður i þessum rekstri. Ég legg áherslu á, að skapa þannig skilyrði, að starfsfólkið sé stolt af þvi að vinna hjá fyrirtækinu, að það þannig geri sér far um að PÁLL BRAGI KRISTJÓNSSON forstjóri Skrifstofuvéla frá l.april 1985. MENNTUN: Stúdent úr stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavik 1964. Lagði stund á nám í lögfræði við Háskóla íslands 1965-1968. Lauk prófi í viðskiptafræði frá viðskiptaháskólanum í Árósum árið 1978. STARFSFERILL: Fulltrúi framkvæmdastjóra Almenna bókafélagsins 1967-1971. Framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar 1972-1974. Starfsmaður i kerf- isfræði- og söludeild IBM á ís- landi 1978-1981. Deildarstjóri skipulags- og hagdeildar Haf- skips hf. 1981-1982. Fjármála- stjóri félagsins 1982-1983. Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Hafskips hf. frá í júní 1983. Páll Bragi Kristjónsson er fæddur í Reykjavík 7.febrúar 1944. Hann er kvæntur Stefaníu I. Pétursdóttur og eiga þau 4 börn. veita viðskiptavininum góða og umfram allt trausta þjónustu, sem er og verður aðalsmerki Skrifstofuvéla h.f. Með þvi að samhæfa vel alla þætti starfsins vil ég gera mér far um að skapa hér góöan vinnustað fyrir gott starfsfólk. Engar áætlanir Hvernig liturðu á þina fyrri vinnustaði, heldurðu sambandi við fyrri starfsfélaga þina þar? -Já, ég held góðum tengslum við marga fyrri starfsfélaga og meðal þeirra á ég marga bestu vini mina. Að lokum má kannski spyrja um tilflutning manna i starfi. Hef- ur þú áætlað þessi skipti þin mik- ið fyrirfram og hvað segirðu um þá sem kjósa að vinna alla starfsævina hjá sama aðila? -Nei, ég hef aldrei gert neinar áætlanir, þetta hefur leitt hvað af öðru að ég skipti um starf. Stundum hefur auðvitað litið út sem farið væri úr einu i annað, en í heild hefur með árunum raðast saman fjölbreyttari reynsla en ella, starfslega og persónulega. Ég held að þetta sé alltaf mis- jafnt, sumum hentar vel að starfa alltaf á sama stað, aðrir eru reiðubúnir að flytja sig til og ég tilheyri greinilega frekar þeim hópi, vil þar að auki vera „gener- alisti" en ekki sérfræðingur. HEIMSINS MESIA ÚÍA/AL AF ZOOM UÓSRÍRJNArVÉlUM Minolta býöur stœrsta úrval ZOOM Ijósritunarvéla sem völ er ó, enda ZOOM tœknin þeirra eigin uppfinning. Meö ZOOM bjóöast nœr ótakmarkaöir minnkunar og stœkkunarmöguleikar. ZOOM LJÓSRITUNARVÉLAR - HREIN TÖFRATÆKI Minolta Ijösritunarvélarnar taka fró 15 til 50 eintök ö mín„ hafa allt aö 1500 eintaka pappírsforöa og eru allar meö kyrrstœöu myndborði. E KJARAN ÁRMÚLA 22 REYKJAVÍK SÍMI83022 MINOLTA 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.