Frjáls verslun - 01.04.1985, Blaðsíða 28
Meö tilliti til örrar þróunar i tölvu-
málum og aukinnar notkunar fyr-
irtækja á tölvubúnaöi ýmiss kon-
ar, leitaöi Frjáls verzlun til Páls
Jenssonar, forstööumanns
Reiknistofu Háskóla Islands og
baö hann um aö svara sgurning-
unni, aö hverju fyrirtæki þurfa aö
huga viö kauþ á tölvubúnaði.
Að móta stefnu og
fylgja henni
„Fyrsta krafan sem menn
þurfa aö uppfylla viö upphaf
tölvuvæöingar i fyrirtæki er að
menn séu tölvulæsir sem kallaö
er, þaö er aö skilja mál tölvunnar.
I ööru lagi þurfa menn aö móta
stefnu um stööu viökomandi fyr-
irtækis í tölvuþróuninni. Sumir
setja sér þaö markmið aö vera i
fararbroddi í þróuninni en aðrir
hafa þaö aö markmiöi aö fylgja
þróuninni fast eftir. Siðan eru
þeir einnig til sem hugsa sér
aðeins aö hanga aftan i þróun
tölvuvæöingar, standa aftarlega,
en fylgjast þó meö. Sem dæmi
um fyrirtæki sem þurfa nauðsyn-
lega aö vera framarlega í tölvu-
þróun eru verkfræðistofur sem
veröa aö vera vel vakandi og þá
ekki sist vegna samkeppnisaöila.
Einnig veröa fyrirtæki aö hafa þá
þekkingu til aö bera aö þau geti
nýtt sér nýjungar i tölvuþróuninni
og til þess að þaö sé unnt verður
þekking aö vera til staöar innan
fyrirtækisins og hefur þessari
þekkingu veriö gefiö nafniö
“mannauöur", sem er tölvuþekk-
ing starfsfólksins i fyrirtækinu.
Islendingar eru ekki aftar á mer-
inni en aðrir i tölvuþekkingu og
tölvunotkun og tölvuvæöing í is-
lenskum fyrirtækjum er síst minni
en i fyrirtækjum erlendis sam-
bærilegrar stæróar. En mergur-
inn málsins aö viö upphaf tölvu-
væöingar i fyrirtæki þurfa stjórn-
endur þess aö móta þá stefnu
sem fylgja á i tölvuvæðingunni og
fylgja henni," sagöi Páll.
Greining verkefna
„Þaö er nauösynlegt hverju
fyrirtæki aö greina þau verkefni
og þær þarfir sem tölvurnar eiga
aö vinna aö og svara, þannig aö
áöur en fariö er af staö í upp-
byggingu tölvuvæöingar fyrirtæk-
is, er óhjákvæmilegt aö skil-
greina verkefnin. Til dæmis hvort
tölvan eigi aö sinna fjárhagsbók-
haldi eöa birgöahaldi, bókhaldi
eða sölu, ritvinnslu eöa töflu-
vinnslu. Nú siðast eru komnir til
skjalanna tölvukassar, en þaö
eru búöarkassar sem tengdir eru
móöurtölvu fyrirtækisins og bók-
ast inn i þá tölvu allt sem selt er,
þannig aö tölvukassarnir aö-
stoða viö aö henda reiöur á
stærö lagersins og þvi hvaö
vantar i hverju tilfelli. Ef um fram-
leiöslufyrirtæki er aö ræöa kemur
til greina aö fyrirtækiö komi sér
upp framleiðslustýrikerfi eöa
framlegöarkerfi eöa verkbók-
haldskerfi, allt eftir þörfunum
hverju sinni. Til þess aö geta val-
iö þaö æskilegasta i hverju tilfelli
þarf augljóslega aö greina þarf-
irnar innan fyrirtækisins," sagöi
Páll.
Áfangaskipting
„Fæst fyrirtæki geta komiö sér
28