Frjáls verslun - 01.04.1985, Qupperneq 61
ári. Jafnframt voru settir 10,5%
vextir á gengisbundin afurðalán,
þegar endurseljanlegt lán og
viðbótarlán er veitt i einu lagi.
Nóvember
Hinn 7.nóvember voru boðnir
út 90 daga ríkisvixlar samtals
aö fjárhæö 30 m.kr. Tilboóum
var tekiö i 25,5 m.kr. að nafn-
veröi, og var meðalársávöxtun
27,8%.
Sama dag voru vextir verð-
tryggðra útlána, sem til var
stofnað fyrir 11. ágúst 1984,
hækkaðir um 1%-stig úr 6% í
7% fyrir bréf meö lánstíma allt
aö 2 1/2 ár og úr 7% i 8% fyrir
lengri lán.
Auk þess gerðu Seölabankinn
og innlánsstofnanir með sér
samkomulag um, að innláns-
stofnanir lækkuöu vexti af nýj-
um verðtryggðum útlánum um
1-2%-stig í 7% og 8% á ári til
að samræma vaxtakjör á verð-
tryggöum lánum.
Hinn 20.nóvember var meöal-
gengi íslensku krónunnar lækk-
að um 12% gagnvart öðrum
gjaldmiðlum. Meginástæður
þessa voru miklar hækkanir
launakostnaöar í kjölfar kjara-
samninga, sem höfðu i för með
sér aukinn framleiðslukostnað
útflutningsatvinnuveganna, og
vaxandi eftirspurn, sem að öllu
óbreyttu myndi leiöa til aukins
viðskiptahalla. Með gengisfell-
ingunni var stefnt að því að
skapa aö nýju skilyröi fyrir
stöðugleika í gengismálum.
í kjölfar hækkunar á gengi er-
lends gjaldeyris ákvaö banka-
stjórn Seðlabankans að leiö-
rétta lánskjör á endurseldum út-
flutningslánum, sem tengd eru
gengi SDR. Leiðrétting þessi
mun nema samtals 440 millj.kr.
Hinn 21.nóvember voru vextir
gengisbundinna afurðalána
lækkaðir í 9,75% á ári. Vextir af
endurseljanlega hlutanum voru
lækkaðir í 9% á ári.
Desember
í Ijósi mikillar verðbólgu, sem
kauphækkanir og gengislækk-
un leiddu af sér, ákvaö banka-
stjórn Seðlabankans hinn
20.desember eftirfarandi vaxta-
breytingar með gildistöku 1 .jan-
úar 1985:
1) Vextir af verðtryggðum út-
lánum lækka um 3%-stig og
verða 4% af lánum allt að 2 1/2
ár, en 5% af lengri lánum.
Skuldabréfa-
vextir fylgja
meðalávöxtun
af nýjum bráfum
á hverjum tíma
Óheimilt verður að veita verð-
tryggð lán til skemmri tíma en 6
mánaða. Þessir útlánsvextir
verða bundnir af ákvöróun
Seðlabankans til loka mars
1985.
2) Vextir af almennu sparifé
hækka um 7%.
3) Vextir af ógengisbundnum
afurðalánum hækka úr 18% i
24%.
4) Tekið verður upp breytt
fyrirkomulag dráttarvaxta,
þannig að þeir verða endur-
skoðaðir mánaðarlega og
ákveðnir meö hliðsjón af meðal-
vöxtum skuldabréfa hverju
sinni.
5) Um breytingu vaxta af al-
mennum skuldabréfum, sem
gefin voru út fyrir H.ágúst,
veróur frá ársbyrjun 1985 tekin
upp sú regla, að þessir vextir
fylgi meðalávöxtum af nýjum
skuldabréfum á hverjum tima,
og mun Seðlabankinn tilkynna
þá mánaöarlega.
Hinn 21.desember voru vextir
gengisbundinna afurðalána
lækkaðir í 9,5% á ári.
Ljósastólpar
Járnsmíði
Framleiðum Ijósastólpa til lýsingar á
götum, bílastæðum, heimkeyrslum og
göngustígum. Stærðir 1,5 - 16 m.
Vinnum alla almenna smíði úr járni, áli
og ryðfríu stáli.
Gerum tilboð í stærri sem smærri verk
ef óskað er.
Vélsmiðjan Stálver hf.,
Funahöfða 17, 110 Rvík
Sími: 83444
61