Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 5
RITSTJÓRNARGREIN
YFIRAÐSTOÐARAÐALFORSTJÓRI
Frjáls verslun birtir að þessu sinni umfjöllun
um þann glundroða sem ríkjandi er í notkun
starfsheita hjá yfirmönnum í íslenskum fyrir-
tækjum, stórum og smáum.
Hvimleiður ruglingur viðgengst einkum í
notkun starfsheita forstjóra og framkvæmda-
stjóra. Svo virðist sem engar skynsamlegar regl-
ur eða viðmiðanir séu til um notkun starfsheita
hjá stjórnendum hér á landi. Þessu fylgir óþarfa
ruglingur sem nauðsynlegt er að koma í veg
fyrir.
Nú er það auðvitað svo að titlar og starfsheiti
eru ekki það sem mestu máli skipta heldur störf-
in sjálf, innihald þeirra og umfang. En engu að
síður er ómarkviss notkun starfsheita til vand-
ræða og veldur ruglingi.
Frjáls verslun leggur til að menn taki höndum
saman um að koma á skynsamlegri skipan við
notkun starfsheita í íslensku atvinnulífi. Stjórn-
unarfélag Islands gæti verið kjörinn vettvangur
til umræðna og ákvarðana í því efni. Hafa þyrfti
samráð við Islenska málstöð sem starfar í
tengslum við Háskóla íslands.
SAMEINING FYRIRTÆKJA
Því hefur verið spáð að árið 1989 geti orðið ár
hinna miklu sameininga í íslensku viðskiptalífi.
Um þessar mundir er mikil umræða um sam-
einingu fyrirtækja hér á landi í stærri, hag-
kvæmari og öflugri rekstrareiningar.
Að undanförnu hefur komið til nokkurra sam-
runa fyrirtækja sem vakið hafa mikla athygli og
orðið hvatning til víðtækrar umræðu í mörgum
fyrirtækjum um stöðu, stefnu og vænlegar
lausnir.
Frjáls verslun fjallar nú ítarlega um samruna
fyrirtækja hér á landi frá ýmsum sjónarhornum.
í þeirri umfjöllun kemur m.a. fram vísbending
um að sex kunnir samrunar íslenskra fyrirtækja
geti haft í för með sér 700 milljón króna kostnað-
arsparnað á ári!
Ljóst er að margs ber að gæta við sameiningu
fyrirtækja því um er að ræða viðkvæmar og
flóknar aðgerðir sem eiga ekki alls staðar við.
En þegar á heildina er litið verður að segja að
fyrirtæki á íslandi eru of mörg og of smá. Fækk-
un og stækkun fyrirtækja í hagkvæmari og öfl-
ugri rekstrareiningar á víða vel við í íslensku
atvinnulífi.
y/Víyt I |
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Frjálst framtak hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasími 31661 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sími 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson - FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 1.975 kr. (329 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 399 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5