Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 30
FERÐALÖG
Átta ferðaskrifstofur
standa fyrir sólar-
landaferðum í leigu-
flugi næsta sumar.
segir Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Samvinnuferðum-
Landsýn.
„Þrátt fyrir allt krepputal erum við
bjartsýn á svipað ár og í fyrra. í skoð-
anakönnun frá í nóvember svöruðu
85% þeirra, sem höfðu ferðast á árinu
1988, því til að þeir ætluðu til útlanda
aftur á árinu 1989. Það gefur tilefni til
bjartsýni. Auk þess er ljóst að orlofs-
ferðir til útlanda hafa færst mikið upp í
þarfapýramída íslendinga þannig að
stöðugt fjölgar í hópi þeirra sem gera
sumarleyfisferðir til útlanda að ár-
vissum atburði. Ég á von á sambæri-
legu sumri og í fyrra en of snemmt er
að spá um næsta haust og vetur.
Markaðurinn í heild er svipaður og
varla er að vænta mikilla breytinga".
Helgi Jóhannsson sagði að rekstur
síðasta árs hjá Samvinnuferðum-
Landsýn væri jákvæður. „En ég hefði
kosið að sjá mun betri afkomu miðað
við umsvif fyrirtækisins og þá áhættu
sem er í þessum rekstri. Ætla má að
ferðaskrifstofurnar leggi sig mjög
fram um að halda verðhækkunum
niðri á sólarlandaferðum í ár. Þær
munu taka á sig kostnaðarhækkanir
innanlands og mæta þeim með aðhaldi
í rekstri til að unnt verði að halda
verði ferðanna niðri eins og kostur
er“.
Loks var Helgi Jóhannsson spurð-
ur hvort hann skynji miklar breyting-
ar ffamundan í orlofsferðum íslend-
inga.
„Nei. Það eru engar grundvallar-
breytingar í sjónmáli. Ýmislegt hefur
breyst. Það fjölgar sífellt þeim sem
fara í hvíld, afslöppun og næði. Það
sjáum við á þeim mikla fjölda sem
velur sumarhúsin. Áður gengu orlofs-
ferðir mun meira út á stuð og
stemmningu. En íslendingar halda
áfram að fara í sólina. Ekkert bendir
til annars“.
Anna Guðný Aradóttir:
ÚTSÝN STENDUR VEL AÐ VÍGI
Það vakti mikla athygli fyrir
skömmu þegar Ferðaskrifstofan Út-
sýn réði unga konu frá Flugleiðum í
stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins. Hún heitir Anna Guðný Aradóttir
og segir okkur að hjá Útsýn séu menn
bjartsýnir á sumarið. „Við eigum von
á svipuðum eða auknum ferðamanna-
fjölda. Við erum hóflega bjartsýn,
1974 -15 ára -1989
Viðskiptaferðir
um allan heim.
s
Odýrar íbúðir í London.
Ferðaskrifstofan
LAND og SAGA hf
Laufásvegur 2,101 Reykjavík, sími 27144.
30