Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 64

Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 64
IÐNAÐUR fyrirtækið aðgang að tilrauna- og þró- unarverksmiðju EWOS ab. í Svíþjóð og fiskeldisstöð fyrirtækisins í Noregi þar sem hægt er að gera samanburð- armælingar á einstökum fóðurteg- undum. Ami upplýsir að á milli 2.5 og 3.0% af veltu EWOS hf. fari beint í þróunarstarfsemi. Ástæðan fyrir því hve margar tegundir af fóðri eru framleiddar er sú að menn eiga að geta valið fóður eftir aðstæðum hverju sinni. Þannig er t.d. til ákveðin fóðurtegund fyrir seiði, önnur fyrir hrygningarfisk, sú þriðja fyrir sjúkan fisk, sú fjórða fyrir fisk sem lifir við erfið skilyrði s.s. kulda og svo mætti lengi telja. Jafnan er reynt að eiga a.m.k. tveggja til þriggja vikna birgðir af helstu tegundunum en aðrar eru framleiddar eftir pöntunum. í bráða- tilfellum er hægt að flýta framleiðslu á einstökum tegundum fyrir fasta við- skiptavini og afgreiða fóðrið innan nokkurra daga. Aðeins er notað hágæðamjöl við framleiðslu á fiskeldisfóðri hjá EWOS hf. Um 75% af hráefninu eru íslenskar fiskafurðir, aðallega loðnumjöl og loðnulýsi en afganginn s.s. litarefni, hveiti og vítamín þarf að flytja inn. Fyrirtækið kaupir innlenda hráefnið frá Fiskimjöli og lýsi hf. í Grindavík en það er ein af fáum loðnubræðslum hérlendis sem getur lághitaþurrkað mjölið, sem síðan er ein forsendan fyrir framleiðslu á hágæðamjöli. Að auki eru gerðar strangar kröfur varð- andi ferskleika loðnunnar sem notuð er í mjölið og eftirlitsmaður frá EWOS hf. fer oft á hverri vertíð og fylgist með löndun og hita í þurrkurum. — Það er ekki nóg að eiga góð tæki. Mjölgæðin ráðast ekki síst af ferskleika loðnunnar og þessu verða sjómenn og aðrir að gera sér grein fyrir. íslensku loðnubræðslurnar voru alveg staðnaðar og það er ekki fyrr en nú á allra síðustu árum að menn virðast gera sér grein fyrir þeirri miklu verðmætasköpun sem hægt er að ná t.d. með gufuþurrkun á loðnu í stað gömlu eldþurrkunarinnar og ströngum kröfum um ferskleika, segir Ámi en samkvæmt upplýsing- um hans hefur íslenska hráefnið reynst mjög vel í fiskafóður og hann telur stöðu íslendinga sterka á þessu sviði. Birgðageymsla fyrirtækisins. Héðan er fylgst með einstökum framleiðsluþáttum. „STYRKUR OKKAR ER LOÐNUVEIÐARNAR“ — Það tók að vísu drjúgan tíma að sannfæra viðskiptavini okkar um gæði íslenska loðnumjölsins, enda var ísland ekki inni á kortinu sem hrá- efnissali á þessu sviði. Styrkur okkar er loðnuveiðarnar, enda hafa t.d. loðnuveiðar Norðmanna hrunið og Færeyingar þurfa að sækja langt til þess að veiða loðnuna. Það er vissu- lega ókostur að við þurfum að kaupa 75% af okkar hráefni á meðan á loðnu- vertíðinni stendur, en við bíðum nú í ofvæni eftir því að sfldarstofninn stækki það mikið að sfld fari að veið- ast í stórum stíl við suðurströndina á sumrin. Þá myndi skapast hér grund- völlur til þess að bræða sfld í miklum mæli, segir Árni og leynir því ekki að hann er ekki alls kostar ánægður með það að þurfa að treysta svo mjög á loðnuna, semraunbervitni. Rejmdar segist hann forðast að hugsa um af- leiðingar þess ef loðnustofninn hryndi eins og dæmi eru um og sfldarstofn- inn væri þá á sama tíma ekki orðinn nægilega sterkur. — Þá yrðum við að flytja inn hrá- efnið og ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda, segir hann. Árni segir að fiskeldi í heiminum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.