Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 66

Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 66
BRÉF FRÁ UTGEFANDA TÍMARITIN í SÓKN Undanfarin tvö ár hefur Félagsvísindastofnun Há- skóla Islands gengist fyrir könnun á lestri og út- breiðslu tímarita á íslandi fyrir Verslunarráð ís- lands. Kannanir þessar hafa verið umfangsmiklar þar sem úrtakið hefur verið meira en gengur og gerist við flestar skoðanakannanir á Islandi, eða 2000 manns. Talið er að hérlendis séu kannanir marktækar þótt úrtakið sé miklu minna, en áreið- anleiki þeirra vaxi í hlutfalli við þann fjölda sem tekur þátt í þeim. Það hefur margsýnt sig að slíkar kannanir sem þessar gefa meira en vísbendingu. Niðurstaða þeirra hefur oftast reynst furðu nálægt lagi og væri hægt að nefna mörg dæmi um slíkt. Niðurstaðan í könnun Verslunarráðs íslands hef- ur verið ótvíræð. Islensk tímarit sem gefin eru út af alvöru og metnaði hafa flest góða útbreiðslu og eru mikið lesin og skoðuð. Þau hafa yfirleitt langan „líftíma“, þ.e. fólk safnar tímaritunum gjarnan, geymir þau, flettir þeim og les þau aftur og aftur. Kannanirnar leiddu til að mynda í ljós að í flestum tilfellum áttu 40% kaupenda eða fleiri tímaritin sem þeir keyptu tveimur árum áður og einstök tím- arit náðu þar mun hærra hlutfalli. Þá leiddi könnun- in líka ótvírætt í ljós að margir kaupendur tíma- ritanna lesa meginhluta efnisins sem þau bjóða upp á eða jafnvel allt. Það var mjög ánægjulegt fyrir Frjálst framtak hf. að tímarit fyrirtækisins komu mjög vel út í könnun- inni og sýnir það okkur sem stöndum að útgáfunni að við erum á réttri leið. Það tímarit sem hafði tvímælalaust vinninginn var Mannlíf en um 75% aðspurðra kváðust hafa séð eða lesið blaðið á síð- ustu 12 mánuðum. Litlu lægra hlutfall höfðu Hús og hýbýli, Nýtt Líf, Vikan og Sjónvarpsvísir Stöðvar 2. Af þessum tímaritum höfðu Nýtt Líf og Sjónvarps- vísir bætt mestu við sig milli kannana. Könnunin leiddi einnig í ljós að þau tímarit sem ætluð eru sérstökum markhópum ná vel til þeirra. Þannig er t.d. mikill meirihluti þeirra er lesa Frjálsa verslun stjórnendur fyrirtækja og vikublað- ið Fiskifréttir virðist ná til langflestra þeirra sem starfa við sjávarútveginn. Markaður fyrir tímarit hefur verið fyrir hendi á Islandi um langt skeið. I áraraðir sátu erlend blöð sem ganga undir nafninu „dönsku blöðin“ að mark- aðnum. Þetta er nú að breytast þrátt fyrir þá stað- reynd að æ fleiri Islendingar verða vel læsir á er- lendum málum. íslensku tímaritin hafa náð stærri hlut af markaðnum en áður og eru í sókn. Sam- keppnin við erlendu tímaritin er þó ennþá hörð og vígstaðan raunar ójöfn. Mörg þessara tímarita eru gefin út í risaupplögum fyrir margfalt stærra máls- væði en ísland er og raunar má segja að þau hafi oftast alþjóðlegan auglýsingamarkað. Útgefendur þeirra geta því deilt kostnaðinum á margfalt fleiri einingar en íslenskir útgefendur. Eðli málsins sam- kvæmt er markaður íslensku tímaritanna þröngur og það bætir heldur ekki samkeppnisstöðu þeirra að þeim er íþyngt með margskonar skattaálögum gagnstætt því sem gerist sums staðar erlendis þar sem litið er á þau sömu augum og aðra prentfjöl- miðla og þau njóta jafnvel ívilnana. Sjálfsagt geta menn endalaust deilt um gildi tímaritaútgáfu á Is- landi og það hvort allur sá fjöldi tímarita sem gefinn er út eigi rétt á sér. En fram hjá þeirri meginstað- reynd má ekki líta að það hefur þjóðhagslegt gildi fyrir okkur íslendinga að vera sjálfum okkur sem mest nógir á þessu sviði sem öðrum að því ógleymdu að vitanlega hafa tímaritin sitt hlutverk í menning- ar- og fræðslulegu tilliti. Sem betur fer sýna kann- anir Verslunarráðs Islands að Islendingar eru þess- um sjónarmiðum sammála og eftir að íslensk tím- arit urðu metnaðarfyllri og betri er ljóst að æ fleiri taka þau fram yfir erlendu tímaritin. 66

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.