Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 24
FORSIÐUGREIN
er með eignaskattsstofn upp á um 70
milljónir króna. Ef það greiðir 2 millj-
ónir í eignaskatt er eignaskattsstofn-
inn um 140 milljónir.
ÞRJÚSEM SKERASIG
ÚR í EIGNASKATTI
Af yfirlitinu sést að Hekla, Bifreið-
ar & Landbúnaðarvélar og Ingvar
I
Helgason greiddu mest í eignaskatta
af bílaumboðunum vegna áranna 1990
og 1992. En einnig voru Brimborg,
Globus, P. Samúelsson og Ræsir
með nokkum eignaskatt.
Globus var með eignaskatt upp á
samtals 6 milljónir vegna áranna 1990
og 1991 en engan vegna ársins 1992.
Það stafar af útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa á árinu 1992 í takt við eigið fé.
Nafnverð hlutabréfa voru skráð úr 26
milljónum í um 290 milljónir króna.
Fyrirtækið var þá gert að almenn-
ingshlutafélagi en við slíkar aðstæður
er algengt að gefin séu út jöfnunar-
hlutabréf. Þess má geta að Globus er
heildverslun og með mörg þekkt um-
boð fyrir utan bíla. Svipað má segja af
Heklu og Ingvari Helgasyni, bæði eru
með umsvif á öðrum vettvangi líka.
Eins og sjá má af yfirlitinu vantar
tölur fyrir Bflaumboðið vegna ársins
1990. Vegna mistaka var það ár ekki
tekið með en Bflaumboðið var stofnað
undir lok ársins 1988. Árið 1989 var
því fyrsta starfsár þess.
NIÐURFELLING AÐSTÖÐUGJALDS
HJÁLPAR BÍLGREININNIMIKIÐ
Aðstöðugjald hefur í mörg ár verið
óvinsæll skattur. Hann var lagður
niður á síðasta ári. Óvinsældir að-
stöðugjalds stöfuðu auðvitað fyrst og
fremst af því að það var lagt á sem
sérstakur veltuskattur án tillits til
rekstrarafkomu. Hann var afar órétt-
látur. Fyrirtæki með mikil umsvif
lentu í að greiða háa skatta.
Ef fyrirtæki töpuðu, gjöld umfram
tekjur, mynduðu tekjumar stofn til
aðstöðugjalds. Ef um hagnað var að
ræða, tekjur umfram gjöld, mynduðu
gjöldin stofn til aðstöðugjalds. Hægt
var að draga liði frá eins og tekjutU-
færslu vegna verðbreytinga. Ekki
meira um það. Búið er að leggja að-
Afkoma bílaumboðanna árin 1990-1992 var mjög misjöfn.
Hún sýnir líka enn og aftur að ekki fer alltaf saman mikil
velta og hagnaður í fyrirtækjum. Þannig gekk rekstur
Ingvars Helgasonar best þrátt fyrir að Hekla og P.
Samúelsson, Toyota, væru bæði með meiri veltu.
Kraftmikill
5 dyra
lúxusjeppi
Suzuki Vitara er einstaklega
sparneytinn jeppi með
frábæra fjöðrun, vökvastýri,
vandaða innréttingu,
rafdrifnar rúður, samlæs-
ingu á hurðum og upphituð
sæti auk fjölda annarra
kosta. Reynsluaktu Suzuki
Vitara og það verður ást við
fyrsta akstur.
$ SUZUKI
SUZUKIBILAR HF
SKEIFUNNI 17 .SlMI 685100