Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 26
FORSÍÐUGREIN
miðað við það sem verið hefur á und-
anfömum tuttugu árum.
Erlendis er talið að um miklar
sveiflur sé að ræða ef sala nýrra bíla
sveiflast um 10% á milli ára og að
erfitt sé að reka fyrirtækin. Hérlendis
hafa sveiflumar verið í tugum prós-
enta. Þannig er 70% samdráttur á
milli toppársins 1987 og botnársins
1993. Það segir sig sjálft að fyrirtækin
þurfa sterk bein og þolinmæði til að
ganga stöðugt í gegnum slíkar sveifl-
ur. Fáar atvinnugreinar hafa búið við
jafn miklar sveiflur og bflaumboðin á
síðustu tíu árum.
Einhver kann að segja að bfll sé
eins og hver önnur neysluvara, nauð-
synjavara, og að fólk ætti að leggja
árlega fyrir sem nemur afskriftunum
til að eiga fyrir verði nýs bfls þegar
það hyggst endumýja. Tekjusam-
drátturinn í þjóðfélaginu kemur hins
vegar í veg fyrir að fólk geti lagt til
hliðar sem skyldi fyrir nýjum bfl. Það
eykur enn á sveiflumar.
VIRÐISAUKASKATTUR AF
GREIÐSLUM ERLENDIS FRÁ
A síðastliðnu ári kom fram í fréttum
mál sem snerta mun sum bflaumboðin
nokkuð á næstunni. Þetta er málið
um virðisaukaskattinn á greiðslum frá
umboðunum erlendis vegna viðgerða
á bflum í ábyrgð.
Dæmi: Nýr bfll, sem er í ábyrgð,
bilar. Gert erviðhann. Eigandibflsins
fær engan reikning. Hins vegar er
reikningurinn sendur til framleiðand-
ans úti sem greiðir reikninginn. Af
þessum reikningi þurfti að greiða
virðisaukaskatt frá byrjun ársins 1990
til 1. aprfl á síðasta ári er ákveðið var
að fella virðisaukaskattinn af þessum
greiðslum niður. Þaubflaumboð, sem
greiddu virðisaukaskattinn af erlendu
greiðslunum á tímabilinu, fengu hann
allan endurgreiddan síðastliðið haust.
Þau, sem ekki greiddu, þurfa hins
vegar að greiða dráttarvexti og viður-
lög vegna þess að þau greiddu ekki
skattinn á sínum tíma. Þetta er gert til
að mismuna ekki umboðunum. En
þau, sem greiddu skattinn, tóku féð
úr rekstri sínum og var greiðslustaða
þeirra verri sem því nam á meðan hin
umboðin héldu peningunum inni í
rekstrinum.
Ingvar Helgason
Brimborg
Tekjuskattur
— milljónir —
66
IOO
i
1990
1991
39
I
1992
Eignaskattsskyld
hrein eign
- milljónir —
469
386 M
IÍ í
1990 1991 1992
Markaðshlutfall
1992 1993
Tekjuskattur
- milljónir-
10
1990
27
1991
27
1992
Eignaskattsskyld
hrein eign
- milljónir —
166
221
200
1990 1991 1992
Markaðshlutfall
#■ _____
STAÐA BILAUMBOÐANNA
INGVAR HELGASON,
- BÍLHEIMAR -
Af bflaumboðunum hefur Ingvar
Helgason hf. hefur haft algera sér-
stöðu í afkomu á síðustu árum. Fyrir-
tækið hefur greitt afgerandi mest í
tekjuskatt á tímabilinu eða um 179
milljónir. Miðað við álagðan tekju-
skatt var skattskyldur hagnaður árið
1990 um 164 milljónir, árið 1991 um
147 milljónir og um 100 milljónir árið
1992.
Ingvar Helgason er með þriðju
mestu veltuna af bflaumboðunum.
Bæði Hekla og P. Samúelsson,
Toyota, hafa verið með meiri veltu en
langtum minni hagnað. Það sýnir að
ekki fer alltaf saman mikil velta og
mikill hagnaður.
Fjárhagsstaðan er sterk eins og sjá
má af eignaskattsskyldri hreinni eign
fyrirtækisins sem var um 317 mill-
jónir árið 1992. Markaðshlutdeild
Ingvars Helgasonar — í gegnum
dótturfyrirtækið Bflheima — jókst á
síðasta ári en Bflheimar eru með um-
boð fyrir GM, Opel og Isuzu. Er
markaðshlutdeildin að nálgast það
sem Toyota og Hekla eru með.
BRIMB0RG
Brimborg, sem er með umboð fyrir
Daihatsu og Volvo, greiddi næstmest
af bflaumboðunum í tekjuskatt á tíma-
bilinu eða samtals um 64 milljónir
króna. Miðað við álagðan tekjuskatt
var skattskyldur hagnaður rúmar 22
milljónir árið 1990, um 60 milljónir
1991 og um 69 milljónir árið 1992.
Brimborg hefur verið með fimmtu
mestu veltuna af bflaumboðunum, á
eftir Heklu, P. Samúelssyni, Ingvari
Helgasyni og Globus.
Fjárhagsstaða Brimborgar er
sterk. Eignaskattsskyld hrein eign
var í lok ársins 1992 um 200 milljónir
króna. Markaðshlutdeild fyrirtækis-
ins minnkaði svolítið á síðasta ári.
26