Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 30

Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 30
FJOLMIÐLAR Starfsfólk í markaðsdeild íslenska útvarpsfélagsins. Átakið „íslenskir dagar“ er eitt best heppnaða markaðsátak í íslensku viðskiptalífi síðustu mánuðina. Talið frá vinstri: Rúnar Sigurbjartarson, Kristinn Karlsson, Ólafur Jón Jónsson, Inga Dóra Halldórsdóttir, íris Gunnarsdóttir og Anna Guðný Aradóttir, aðstoðarmarkaðsstjóri fslenska útvarpsfélagsins. VEL HEPPNAÐ MARKAÐSÁTAK: ÍSLENSKIR DAGAR Á STÖD 2 OG BYLGJUNNI - ÞJÓDARHVATNING TIL AUKINNAR BJARTSÝNIOG FRAMFARA Átakið „íslenskir dagar“, sem íslenska útvarpsfélag- ið stóð að seinni hluta febrúar, er eitt best ik heppnaða markaðsátak í f íslensku viðskiptalífi á undanförnum mánuðum. 41 Það var vel skipulagt af markaðsdeild íslenska útv- arpsfélagsins þar sem tvær TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON MYNDIR; 30 deildir unnu vel saman, mark- aðsdeildogfréttadeild. Hitt er ekki síðra; „íslensku dagarnir" voru þjóðar- hvatning til aukinnar bjartsýni og framfara í ís- lensku viðskiptalífi. Þetta er í annað sinn sem félagið stendur að svona átaki. KRISTJÁN EINARSSON Að sögn Páls Magnússonar út- varpsstjóra hlaut þetta framtak mjög jákvæð viðbrög. „Hugmyndin kvikn- aði í fyrra og kom upprunalega frá markaðssviði íslenska útvarpsfélags- ins. Markaðsdeildin átti síðan veg og vanda að framkvæmdinni. En einnig komu þeir Kristján Már Unnarsson og Karl Garðarsson sterkir til þessa leiks með framleiðslu hinna ágætu

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.