Frjáls verslun - 01.02.1994, Síða 31
þátta, „Framlag til fram-
fara“, í tengslum við „ís-
lensku dagana“,“ segir Páll.
„Þá ríkti gífurleg bölsýni í
samfélaginu og eftir frétta-
flutningi að dæma var allt að
fara til fjandans. Aðallega
virtist þar um að kenna
skorti á nýsköpun. Við kom-
umst hins vegar að því,
þegar gagngert var farið að
leita vaxtarbrodda og nýj-
unga meðal landsmanna, að
af nógu var að taka. Fram að
því hafði lítið borið á slíku
enda menn ekki upp á hvern
dag að básúna eigið ágæti í
fjölmiðlum."
ALDREIVIÐLIKA VIÐBROGÐ
Fyrst í stað þurftu þeir
Kristján Már og Karl að hafa
nokkuð fyrir þáttunum
„Framlag til framfara“. En
eftir að jákvæðar fréttir
þeirra tóku að berast út á
öldum ljósvakans var eins
og framtakssemin vaknaði
af Þymirósarsvefni sínum
út um allt land.
„Ekkert, sem við höfum nokkru
sinni tekið okkur fyrir hendur hér á
Stöð 2 og Bylgjunni, hefur fengið við-
líka viðbrögð. Umfjöllunin hefur ekki
einungis smeygt bjartsýninni inn í
þjóðarvitundina, hún hefur einnig
verkað sem framtakshvati fyrir ýmis
fyrirtæki. Eg veit ennfremur til þess
að þeir, sem unnið hafa að þessu hjá
okkur, hafa komist á snoðir um ýmis-
legt sem hefur síðan nýst beinlínis
sem fréttaefni. Viðbrögðin, ábend-
Páll Magnússon, útvarpsstjóri íslenska útvarpsfélags-
ins: „Umfjöllunin hefur ekki einungis smeygt bjart-
sýninni inn í þjóðvarvitundina, hún hefur einnig verk-
að sem framtakshvati fyrir ýmis fyrirtæki."
fram. Dagskrárgerðarmenn
lögðu allir sitt af mörkum til
að gera veg íslensks iðnaðar
sem mestan. Stöð 2 fylgdi
síðan vel á eftir með athygl-
isverðum umfjöllunaratrið-
um í 19:19, sem og í „Fram-
lagi til framfara".
Átakið að þessu sinni var í
meginatriðum tvískipt.
Annars vegar voru íslend-
ingar hvattir til umhugsunar
um íslenskar vörur sem eru
fyllilega samkeppnisfærar
við erlenda vöru eða þjón-
ustu. Hins vegar stóð ís-
lenska útvarpsfélagið hf.
fyrir dagskrá í útvarpi og
sjónvarpi þar sem athyglinni
var beint að íslenskum at-
hafnamönnum. Samhliða fór
fram annað átak, „íslenskt
— já, takk!“ sem þó var ekki
rekið í beinum tengslum við
„íslenska daga“ á Bylgjunni
og Stöð 2.
ingar og upplýsingar, eru ótrúlega
mikil og viðfangsefnið virðist hvergi
nærri tæmt.“
UM 50 FYRIRTÆKIKYNNT
Tæplega 50 fyrirtæki — og störf
þeirra — hafa verið kynnt í fréttatím-
um og fréttatengdum þáttum Stöðvar
2 og Bylgjunnar. Komust færri að en
vildu. Bylgjan gegndi lykilhlutverki í
framkvæmd „íslenskra daga“ og þar
á bæ fór meginþungi dagskrárinnar
INNLEND DAGSKRARGERÐ
Um innlenda dagskrár-
gerð Islenska útvarpsfé-
lagsins segir Páll: „Við höf-
um aukið framleiðslu íslensks sjón-
varpsefnis jafnt og þétt með
skipulegum hætti frá 1991. Hún verð-
ur að vísu jafn mikil á þessu ári og í
fyrra en á næsta ári er útlit fyrir veru-
legri aukningu innlends efnis.“
Þess má geta að íslenska útvarps-
félagið hf. skilaði hagnaði á síðasta ári
og er útlit fyrir að svo verði einnig
1994. Fyrirtækið stendur frammi
fyrir miklum íjárfestingum vegna
nýrra myndlykla.
31