Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 37

Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 37
SJÁLFSTÆÐI SEÐLABANKA isvarasjóð landsins. í þriðja lagi að vera banki ríkissjóðs. í fjórða lagi að vera banki innlánsstofnana og vera bakhjarl þeirra ef fjárhagslegt öryggi þeirra er í hættu. í fimmta lagi er seðlabanka oft falið eftirlit á fjár- magnsmarkaði. Þetta er vaxandi hlut- verk seðlabanka víða um heim. Þann- ig er því háttað hérlendis með starf- semi bankaeftirlitsins.“ 3. Hvers vegna er nauðsyn- legt að seðlabanki sé sjálf- stæður? „Það fer eingöngu eftir því hvað sé talið skynsamlegt með tilliti til mark- miða bankans hvort menn vilji auka eða minnka sjálfstæði seðlabanka. Al- mennt er talið að markmið seðla- banka eigi að vera sem skýrast og lúta að því að stuðla að stöðugu verðlagi. Þetta byggist á því að til lengri tíma er stöðugt verðlag forsenda fyrir því að unnt sé að tryggja önnur mikilvæg efnahagsleg markmið eins og aukinn hagvöxt og lítið atvinnuleysi. Aukið sjálfstæði seðlabanka er ekki trúaratriði heldur skynsamlegt fyrir- komulag sem styðst við reynslu fjöl- marga þjóða. Þannig væri verksvið seðlabanka skýrt afmarkað og honum ekki falin fleiri verkefni en hann hefur stjómtæki til að hafa áhrif á. Aðrir mikilvægir þættir efnahagsstjórnunar eru á ábyrgð og á valdi ríkisstjórnar á hverjum tíma. Sjálfstæði seðlabanka felst fyrst og fremst í því að hafa skýra verkaskipt- ingu milli ríkisstjórnar og seðlabanka. Seðlabanki á að móta stefnu í pen- ingamálum og beita stjómtækjum sín- um á því sviði án afskipta ríkisstjórn- ar. Ríkisstjómir hafa síðan mörg önn- ur stjómtæki í efnahagsmálum sem eru og eiga að vera utan áhrifasviðs seðlabanka. Þótt sjálfstæði bankans sé aukið á þessu sviði, þá er það fyrst og fremst sjálfstæði gagnvart ríkisstjórn. Seðla- bankinn mun eftir sem áður lúta valdi ffiSKi Alþingis í formi laga og með starfi bankaráðs sem er kjörið af Alþingi." 4. Eru stjórnmálamenn ekki að afsala sér valdi með því að hafa sjálfstæðan seðla- banka, banka sem þeir ráða ekki yfir? „Ef vald seðlabanka á tilteknu sviði er aukið þá liggur í hlutarins eðli að vald annarra minnkar. Þróun undan- farinna ára hefur reyndar verið sú að með vaxandi frjálsræði í viðskiptum, bæði innanlands og erlendis, er vald í efnahagslegum ákvörðunum í miklu ríkari mæli á frjálsum markaði, t.d. á fjármagnsmarkaði. Aukið frelsi hefur þannig minnkað vald stjórnvalda verulega, hvort sem um er að ræða vald seðlabanka eða ríkisstjórna. í núgildandi lögum um Seðlabanka íslands er gert ráð fyrir að verði deil- ur milli ríkisstjómar og Seðlabankans þá ræður stefna ríkistjórnarinnar. Sjálfstæði seðlabanka felst í því að hann hafi sjálfstæði á sviði peninga- mála og eftirlits og vinni að stöðugu verðlagi en ríkisstjórn, sem starfar í umboði lýðræðislega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar, ræður ferðinni að veru- legu leyti í mikilvægum málum eins og atvinnustefnu og launamálum.“ 5. Er hægt að hafa sjálf- stæðan seðlabanka nema bankaráð hans hafi loka- orðið við ráðningu banka- stjóra? 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.