Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 46

Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 46
STJORNUN honum mistakist, að hann verði hreinlega jarðaður af innanhússmönn- um sem finni höggstað á honum. Galdurinn sé að læra að stytta sér leið, drukkna ekki í smáatriðum og aukaatriðum. Taka á stóru málunum. vitneskju um hvert smáatriði í rekstr- inum, er erfiðasti hlutinn eftir. Að skapa nýja hugsun, nýjan anda, nýjan stíl í fyrirtækinu. Það má líkja þessu við að kenna gömlum hundum að sitja upp á nýtt. Til að koma fyrirtæki á LOGMAL PARETO Fisher segir: „Það er hægt að læra og skilja mörg lykilatriði í rekstri hvers fyrirtækis á nokkrum dög- um.“ En hvernig? Með því að nýta sér lögmál Paretos, sem nefnt er í höfuðið á ítölskum hag- fræðingi, Vilfredo Pareto. Lögmálið gengur út á að í stjórnun stafi um 80% allra vandræða af aðeins um 20% starfshátta. Að fáir hlutir skapi mikil vandræði og þannig sé hægt að útr- ýma mestu vandræðunum með til- tölulega fáum lausnum. Aðalatriðið sé að bera kennsl á hlutina sem skapi vandræðin og kippa þeim í lag. Þá muni árangurinn ekki láta á sér standa. Mike Walsh hjá Tenneco er heldur ekki hrifin af smáatriðum í stjórnun. Hann hefur stjómað fyrirtækjum í mismunandi starfsgreinum en alltaf með góðum árangri. Hann segir að sömu grunnlögmálin séu í stjórnun allra fyrirtækja, á hvaða sviði sem þau annars starfa. Hann hefur fengist við framleiðslu á vélum, rekið flutninga- fyrirtæki og núna stjórnar hann sam- steypu á sviði orkumála. En hefur hann orðið sérfræðingur á öllum þessum sviðum? Hann segir: „Ég ætla að segja ykkur svolítið sem flestir eru ekki nógu heiðarlegir til að viðurkenna. Það lærir enginn um hverju einustu ró og nagla í rekstri þess fyrirtækis sem hann stjórnar. En hvað sem því líður,“ segir Walsh, „reglan hjá utanaðkomandi forstjór- um er að starfa meira eins og dómari í gerðardómi sem útkljáir deilur fram- kvæmdastjóranna og gefur skipanir þegar þess er þörf.“ ERFIÐASTI HJALLINN ERAÐ KENNA GÖMLUM HUNDIAÐ SITJA Þegar utanaðkomandi forstjóri hef- ur talað við fólkið í sínu nýja fyrirtæki, gert lykilmenn að helstu fylgismönn- um sínum, ekki sóað tíma í að afla Taktu nokkra ritara með þér í hádegisverð. Venjulega vita þeir nákvæmlega hverjir hafa hin raunverulegu völd í fyrirtækjum. Skipuritið er síðasti staðurinn til að finna út hver hefur völdin. unarhátt innan staðnaðra fyrirtækja verður sjaldan áréttað nógu oft. Fish- er, forstjóri Kodak, spyr nú öðruvísi spurninga innan fyrirtækisins en áður var gert. Hann vill stöðugar betrum- bætur. Fyrirtækið er með góða tækni en hefur dregið fæturna varð- andi það að koma henni nógu fljótt á markað. „Ef einhver segir að það taki eitt ár að gera eitthvað, spyr ég á móti, hvers vegna er ekki hægt að gera það á mánuði?“ beinu brautina verður utanaðkomandi forstjóri að gefa nákvæmt merki til allra starfsmanna um að gamla hugs- unin, sem olli vandræðunum, sé að baki og ný hegðun og vinnubrögð hafi litið dagsins ljós. Þegar John Grundhofer yfirgaf Wells Fargo árið 1990 og tók við First Bank System í Minneapolis greip hann til nokkuð óvenjulegra ráðstaf- ana. Hann bannaði blóm og plöntur á skrifstofum vegna þess að þær voru of dýrar, hann lokaði kaffiteríu starfs- manna og bað framkvæmdastjóra sína að laga til á skrifstofum sínum og hafa þar ekki of mikinn glæsibrag. Flesta setti hljóða og fæstir gátu jánk- að þessu. En tilgangur hans var aug- ljós. Skilaboðin voru einföld; tími bruðls og eyðslusemi, sem afvega- leiddi fyrirtækið, var á enda. Mikilvægi þess að breyta um hugs- MUNDU 1. Mundu að gott er að gefa se'r einn til tvo mánuði til að kynnast innvibum fyrirtækisins og láta svo til skarar skríða affestu. 2. Mundu aðfyrir er mikil vitn- eskja ífyrirtækjum. Málið er bara að mynda sterka liðsheild sem nýtir vitneskjuna rétt. 3. Mundu að þú þarft ekki að þekkja öll smáatriði. Þitt verk er að taka á stórum málunum ogþá leys- astyfirleitt smáatriðin í leiðinni. 4. Mundu að þú verður að breyta út af venjunni í fyrirtxkinu til að rétta hlutina við. HVERS VEGNA STOKKVA TOPPMENN YFIR í VEIK FYRIRTÆKI? Margir spyrja sig hvers vegna for- stjórar í toppstöðum taki áhættuna af að færa sig um set, gerast forstjórar hjá veikburða fyrirtækjum og reyna að rétta þau við. Takist þeim vel upp eru þeir hetjur. Mistakist þeim eru þeir taldir slappir. Gamlar goðsagnir eru fljótar að gleymast. Á bak við áhættuna getur verið mikil gróðavon. Heildartekjur bandarískra forstjóra eru að litlum hluta föst laun. Þeir búa við svonefnt gulrótarkerfi, fá sjálfir hluta af þeim hagnaði, sem þeir skapa, sérstaklega í gegnum viðskipti með hlutabréf í fyrirtækjunum. (Stock option). Takist þeim að rétta við veikburða fyrirtæki fá þeir meira en góð laun, þeir verða mjög ríkir menn. GOÐSAGNIR 0G HETJUR En peningar eru ekki allt. Margir af utanaðkomandi forstjórum hafa þegar rétt við fyrirtæki og eru vellauðugir fyrir. Hvað fær þá til að taka áhætt- una? Svarið er hreinn og klár metnað- ur. Þeir eru keppnismenn og þrífast á keppni. Þeir hafa unun af að takast á við eitthvað sem flestir telja óviðráð- anlegt. Takist þeim vel upp verða þeir ekki bara enn ríkari, það skiptir þá meiru að þeir verða goðsagnir í stjórnun — hetjur. Utanaðkomandi forstjórar, sem taka til hendinni í nýju fyrirtæki, valda hugsanlega mörgum sársauka til skamms tíma við að koma fyrirtækj- um af brauðfótum yfir á traustan legg. En til langs tíma bjarga þeir langtum fleiri störfum og hafa jafnvel skapað ný og örugg störf. (Byggt á Fortune) 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.