Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 47
DOMSMAL
FYRSTIDÓMUR SINNAR TEGUNDAR í HÆSTARÉTTI:
STJÓRNARMENN ERU
PERSÓNULEGA ÁBYRGIR
Afar athyglisverður dómur var felldur í Hæstarétti ekki alls fyrir löngu. Ættu allir stjórnarmenn í fyrirtækjum
kynna sér hann vel. Stjórnarmenn voru gerðir fjárhagslega ábyrgir vegna skuldbindinga félags.
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
Ekki alls fyrir löngu féll í
Hæstarétti dómur þar sem tveir
stjórnarmenn hlutafélags voru
gerðir persónulega ábyrgir fyrir
viðskiptum félagsins. Þetta er
fyrsti dómur sinnar tegundar
hér á landi.
Lögfræðingar telja að dómurinn
hafi ótvírætt fordæmisgildi. Þeir
segja að eftir að dómurinn féll hafi
margir, sem sitja í stjórnum hlutafé-
laga, leitað sér lögfræðilegrar ráð-
gjafar því menn vildu vita hvaða
ábyrgð þeir væru að axla. Einn lög-
fræðingur, sem rætt var við, taldi að
menn væru orðnir tregari til að setj-
ast í stjórnir. Á næstunni er talið lík-
legt að mörg mál af svipuðum toga
eigi eftir að h'ta dagsins ljós.
LFpphaf þessa máls má rekja til
þess að erlendur aðili, Bilex, höfðaði
mál á hendur tveimur stjórnarmönn-
um í hlutafélaginu Mótorskipum hf.
og krafðist þess að þeir yrðu gerðir
ábyrgir fyrir skuld sem stofnað hafði
verið til í nafni hlutafélagsins. Skuldin
var tilkomin vegna bílainnflutnings en
íslenska hlutafélagið keypti notaða
bíla frá Þýskalandi og ætlaði að selja
þá hér á landi. Fyrir réttinum var ekki
deilt um upphæð kröfunnar.
Mótarskip var stofnað árið 1966.
Samkvæmt samþykktum þess átti
það að annast skipamiðlun, skipa-
rekstur og aðra útgerðarstarfsemi.
Við stofnun fyrirtækisins var annar
stefndu kosinn í stjóm og var hann
jafnframt skráður framkvæmdastjóri
félagsins. Árið 1981 ákvað hann að
hefja innflutning notaðra bíla frá
Þýskalandi og fékk hann til liðs við sig
annan mann. Stjórnarfundir voru ekki
haldnir í félaginu frá þeim tíma.
Mönnum hugnaðist þó að halda
einn aukaaða-
47