Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 49
SÉRATKVÆÐI HJARTAR
Hjörtur Torfason skilaði sérat-
kvæði. Komst hann að þeirri niður-
stöðu að annar mannanna, sá sem var
framkvæmdastjóri Mótorskipa, væri
ábyrgur fyrir fjárskuldbindingum
enda hafi hann átt viðskiptin við hinn
erlenda aðila. Hjörtur telur hins vegar
að hinn stjórnarmanninn sé ekki hægt
að draga til ábyrgðar enda hafi hinn
erlendi aðili lýst því yfir að fyrirtæki
sitt hafí hvorki gert samninga við
hann og né kynnt sér hvernig sam-
starfi stjórnarmannanna tveggja væri
háttað.
Hjörtur telur ennfremur að erlendi
aðilinn hafi átt ótvíræðan kost á að
kynna sér til hlítar starfshætti Mótor-
skipa og fjárreiður og að ekki verði
séð að hann hafi verið beittur blekk-
ingum. Þvert á móti hafi honum verið
ljóst að fyrirtækið átti við mikla
greiðsluerfiðleika að stríða. Jafnframt
sýni gögn málsins að viðskiptunum
hafi ekki verið slitið vegna þessara
greiðsluörðugleika heldur þegar yfír-
völd gripu í taumana í lok janúar 1985
við rannsókn máls fyrirtækisins gagn-
vart tollyfirvöldum.
HRAFNHILDUR STEFÁNSDÓTTIR, VINNUVEITENDASAMBANDIÍSLANDS
EKKIHÆGT AÐ SKÝLA SÉR Á
BAK VIÐ HLUTAFÉLAGSFORMIÐ
Dómurinn staðfestir að menn
geta ekki komið sér hjá persónu-
legri ábyrgð á viðskiptaskuldbindin-
gum sínum með því einu að skrá
starfsemi sína sem hlutafélag.
Til þess að geta notið góðs af
ábyrgðarreglum hlutafélaga verður
reksturinn að vera í samræmi við
reglur hlutafélagalaga, halda þarf að-
alfundi, ganga verður frá ársreikning-
um og fara að samþykktum félagsins.
Stjómarmenn og framkvæmdastjóri,
sé hann ráðinn, bera ábyrgð á því að
svo sé. Á því var alvarlegur misbrest-
ur í þessu tilviki og á því byggist
dómsniðurstaðan.
Ég á því ekki von á að dómurinn
hræði menn frá því að setjast í stjómir
hlutafélaga. Ég tel á hinn bóginn líkur
á að hann verði til þess að menn geri
sér betur grein fyrir ábyrgð sinni, sé
ekki rétt að farið, og stuðli þannig að
öryggi í viðskiptum.
Reyndar hafa áður gengið refsi-
dómar um ábyrgð stjómarmanna í
hlutafélögum. Stjómarmenn hafa
þannig verið gerðir ábyrgir fyrir því
að hafa ekki skilað gjöldum sem haldið
var eftir af launum starfsmanna. Fyrir
viðskiptalífið skiptir miklu að mönn-
um sé, eins og kostur er, ljóst hvert
sé hlutverk, skyldur og ábyrgð
stjómarmanna í fyrirtækjum þó rétt-
arstaðan sé óljós um margt.
Það þarf því upplýsingar og
fræðslu sem er til þess fallin að gera
stjómarmenn virkari í stefnumótun
og eftirliti. Með því móti má auka
traust manna á fyrirtækjum. Dómur-
inn er þannig innlegg í þá umræðu,
sem nú á sér stað, um viðskiptasið-
ferði sem margir telja að þurfi að
bæta.
SAMVINNUHÁSKÓLINN - REKSTRARFRÆÐI
Rekstrarfræðadeild
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því að reksrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgðar-
og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við
Samvinnuháskólann aða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Oll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn,
starfsmannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmál o.fl.
Námstimi: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er lánshæft hjá LIN.
Frumgreinadeild
Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Umsækjandi skal hafa lokið lánshæfu sérnámi, s.s. iðn-, vél-, stýrimanna-, bænda-, hótel og
veitingaskóla, o.fl.
Námstími: Einn vetur, frá september til maí. Námið er lánshæft hjá LIN.
Undirbúningsnám
Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: A.m.k. þriggja ára almennt framhaldsskólanám eða sambærilegt.
Námstími: Einn vetur, frá september til maí.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bifröst, ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.fl.
Barnaheimili og grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um 40.000 kr. á mánuði næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst. I því skal geta persónuupplýsinga, upplýsingar
um fyrri skólagöngu með afriti skirteina og um fyrri störf. Tvenn meðmæli fylgi. Þeir umsækjendur ganga fyrir,
sem eru orðnir eldri en 20 ára og hafa öðlast reynslu í atvinnulífinu. Umsóknir verða afgreiddar 25, apríl n.k.
og síðan eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólinn Bifröst, 311 Borgarnes • Sími: 93-50000 • Bréfsími: 93-50020
49