Frjáls verslun - 01.02.1994, Side 58
FOLK
ÞÓREY BJARNADÓTTIR,
HJÁ DANÍEL ÓLAFSSYNI
Þórey sér um sælgætissölu hjá Daníel Ólafssyni en var framkvæmdastjóri íslenzk-
erlenda verslunarfélagsins áður en Daníel Ólafsson hf. keypti það fyrirtæki.
„Nú er páskasalan í
fullum gangi en við selj-
um mikið af Mackintosh
og After eight sælgæti
fyrir páska og jól. Við
erum líka að setja á
markað páskaegg sem
eru fyllt með þessu sæl-
gæti. Mackintosh hefur
lengi verið uppáhalds
sparisælgæti íslend-
inga og er ómissandi
gjöf eftir hverja utan-
landsferð. Mikið selst af
því í fríhöfninni en það
hefur verið fáanlegt í
verslunum hér á landi
frá því innflutnings-
banni var létt af erlendu
sælgæti 1978,“ segir
Þórey Bjarnadóttir
sölustjóri hjá Daníel
Ólafssyni.
Þórey er 33 ára og varð
stúdent frá Verslunarskóla
íslands 1981. Frá 1984 vann
hún í Hljómbæ við sölu-
stjórn.
„Ég byrjaði að vinna hjá
föður mínum, Bjama Stef-
ánssyni í Hljómbæ þegar ég
var unglingur og er því alin
upp við verslunarrekstur,"
segir Þórey.
í mars 1990 gerðist ég
framkvæmdastjóri íslenzk
erlenda verslunarfélagsins
en 1992 keypti Daníel Ólafs-
son hf. fyrirtækið og nú er
ég sölustjóri sælgætisdeild-
arinnar.“
HIÐ SÍVINSÆLA MACKINTOSH
Þórey stjórnar nú sölu á
vörum frá Nestlé-Rown-
tree, Chupa sleikibrjóst-
sykri og Kims flögum hjá
Daníel Ólafssyni. Af sex
sölumönnum fyrirtækisins
eru þrír undir hennar stjóm.
Hinir sjá um sölu á matvöru
sem fyrirtækið flytur inn,
t.d. Merrild kaffi og Bur-
tons kexi.
„Nestlé, sem er eitt
stærsta matvælafyrirtæki
heims, keypti breska fyrir-
tækið Rowntree-Mackin-
tosh 1988 og er því nú
stjórnað frá Sviss þó að
verksmiðjurnar séu enn í
York í Bretlandi eins og þær
hafa verið frá því Rowntree
var stofnað 1725. Það voru
kvekarar sem þróuðu sæl-
gætisgerð í Bretlandi því
þeir mega hvorki neyta
áfengis né tóbaks. Hið vin-
sæla sælgæti Quality Street
kom fyrst á markað 1936 og
er kennt við samnefnt leikrit
eftir J.M. Barry en hann er
líka höfundur sögunnar um
Pétur Pan. Hjónin sem
skreyta dósina eru einmitt
persónur í því leikriti.
Vinnan hér er lifandi og
skemmtileg. Eftir páska-
törnina fer sala á súkkulaði
af stað þegar sjoppumar við
hringveginn opna á vorin.
Kit Kat og Smarties hækka
þá í sölu og sú sala tekur
einnig kipp á haustin þegar
skólarnir byrja. Það er stað-
reynd að íslendingar borða
mikið af sælgæti og ég hef
auðvitað ekkert á móti því,“
segir Þórey.
HESTAMENNSKA
Eiginmaður Þóreyjar er
Arni Haukur Bjömsson lög-
fræðingur fulltrúi hjá sýslu-
manni í Keflavík og eiga þau
tvær dætur, 7 og 9 ára.
„Mitt helsta tómstunda-
gaman er hestamennska og
við erum öll í fjölskyldunni
saman í því,“ segir Þórey.
„Við eigum fjóra hesta og
stundum útreiðar, t.d. fór-
um við í tvær vikuferðir inn í
óbyggðir sl. sumar. Á vet-
urna skiptumst við á við vini
okkar að hirða hestana í
sameiginlegu hesthúsi. Við
skreppum af og til á skíði en
mér hefur ekki gefist tími til
að sinna fleiru utan vinnunn-
ar,“ segir Þórey.
58