Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 58

Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 58
FOLK ÞÓREY BJARNADÓTTIR, HJÁ DANÍEL ÓLAFSSYNI Þórey sér um sælgætissölu hjá Daníel Ólafssyni en var framkvæmdastjóri íslenzk- erlenda verslunarfélagsins áður en Daníel Ólafsson hf. keypti það fyrirtæki. „Nú er páskasalan í fullum gangi en við selj- um mikið af Mackintosh og After eight sælgæti fyrir páska og jól. Við erum líka að setja á markað páskaegg sem eru fyllt með þessu sæl- gæti. Mackintosh hefur lengi verið uppáhalds sparisælgæti íslend- inga og er ómissandi gjöf eftir hverja utan- landsferð. Mikið selst af því í fríhöfninni en það hefur verið fáanlegt í verslunum hér á landi frá því innflutnings- banni var létt af erlendu sælgæti 1978,“ segir Þórey Bjarnadóttir sölustjóri hjá Daníel Ólafssyni. Þórey er 33 ára og varð stúdent frá Verslunarskóla íslands 1981. Frá 1984 vann hún í Hljómbæ við sölu- stjórn. „Ég byrjaði að vinna hjá föður mínum, Bjama Stef- ánssyni í Hljómbæ þegar ég var unglingur og er því alin upp við verslunarrekstur," segir Þórey. í mars 1990 gerðist ég framkvæmdastjóri íslenzk erlenda verslunarfélagsins en 1992 keypti Daníel Ólafs- son hf. fyrirtækið og nú er ég sölustjóri sælgætisdeild- arinnar.“ HIÐ SÍVINSÆLA MACKINTOSH Þórey stjórnar nú sölu á vörum frá Nestlé-Rown- tree, Chupa sleikibrjóst- sykri og Kims flögum hjá Daníel Ólafssyni. Af sex sölumönnum fyrirtækisins eru þrír undir hennar stjóm. Hinir sjá um sölu á matvöru sem fyrirtækið flytur inn, t.d. Merrild kaffi og Bur- tons kexi. „Nestlé, sem er eitt stærsta matvælafyrirtæki heims, keypti breska fyrir- tækið Rowntree-Mackin- tosh 1988 og er því nú stjórnað frá Sviss þó að verksmiðjurnar séu enn í York í Bretlandi eins og þær hafa verið frá því Rowntree var stofnað 1725. Það voru kvekarar sem þróuðu sæl- gætisgerð í Bretlandi því þeir mega hvorki neyta áfengis né tóbaks. Hið vin- sæla sælgæti Quality Street kom fyrst á markað 1936 og er kennt við samnefnt leikrit eftir J.M. Barry en hann er líka höfundur sögunnar um Pétur Pan. Hjónin sem skreyta dósina eru einmitt persónur í því leikriti. Vinnan hér er lifandi og skemmtileg. Eftir páska- törnina fer sala á súkkulaði af stað þegar sjoppumar við hringveginn opna á vorin. Kit Kat og Smarties hækka þá í sölu og sú sala tekur einnig kipp á haustin þegar skólarnir byrja. Það er stað- reynd að íslendingar borða mikið af sælgæti og ég hef auðvitað ekkert á móti því,“ segir Þórey. HESTAMENNSKA Eiginmaður Þóreyjar er Arni Haukur Bjömsson lög- fræðingur fulltrúi hjá sýslu- manni í Keflavík og eiga þau tvær dætur, 7 og 9 ára. „Mitt helsta tómstunda- gaman er hestamennska og við erum öll í fjölskyldunni saman í því,“ segir Þórey. „Við eigum fjóra hesta og stundum útreiðar, t.d. fór- um við í tvær vikuferðir inn í óbyggðir sl. sumar. Á vet- urna skiptumst við á við vini okkar að hirða hestana í sameiginlegu hesthúsi. Við skreppum af og til á skíði en mér hefur ekki gefist tími til að sinna fleiru utan vinnunn- ar,“ segir Þórey. 58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.