Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 62
ersson sölustjóri, Jón Kristinn Jens-
son þjónustustjóri og Gísli R. Ragn-
arsson markaðsstjóri.
Fyrirtækið er með þeim elstu sem
nú eru starfandi á sviði upplýsinga-
tækni á markaðnum. Það jók umfang
sitt verulega vorið 1992 þegar rekst-
ur tölvudeildar Kristjáns Ó. Skagfjörð
var tekinn yfir. Með yfirtökunni náð-
ist ekki bara umboðið fyrir Digital
Equipment Corporation, en það er
eitt hið stærsta sinnar tegundar í
heiminum, heldur kom þaðan mikil
þekking og reynsla á sviði miðlungs
og stærri tölvukerfa.
DREIFING VALDS OG ÁBYRGÐAR
Fyrir var innan Örtölvutækni mikil
þekking á sviði nettenginga og ein-
menningstölva. Nú, þegar menn eru
að leggja síðustu hönd á að samræma
þekkingarsviðin, er Örtölvutækni vel
í stakk búið til að taka á sig aukna
ábyrgð og bjóða nýjar tegundir af
þjónustu. Við þessa samræmingar-
vinnu hefur verið stuðst við ákveðna
aðferðarfræði sem nýr framkvæmda-
stjóri hefur innleitt í fyrirtækið og
verður notast við hana í stjómun
fyrirtækisins í framtíðinni. Megin-
áherslan í þessari aðferðarfræði er
dreifing valds og ábyrgðar.
ERLENDIS ER MESTIVÖXTURINN
í ÞJÓNUSTUNNI
Það sem er að gerast á þessu
tölvusviði úti í hinum stóra heimi er að
þjónustuþáttur tölvufyrirtækjanna er
að vaxa. Við sjáum þetta t.d. gerast
hjá Digital en þar er vöxturinn mestur
í sölu á þjónustu og þá ekki síst ráð-
gjafarþjónustu. Þetta er samt sem
áður enginn sérlegur vendipunktur í
sögunni heldur er hér um að ræða
eðlilega þróun með harðnandi sam-
keppni að sögn Gísla Ragnarssonar.
Fram kemur hjá forsvarsmönnum
fyrirtækisins að samskipti þeirra við
Digital séu með miklum ágætum sem
sé nauðsynlegt vegna þess hvemig
sérhæfingu okkar sérfræðinga sé
háttað.
SÉRFRÆÐINGAR AÐ UTAN
MEÐ SKÖMMUM FYRIRVARA
„Við getum fengið til okkar sér-
fræðinga með örskömmum fyrirvara.
Hér á landi er markaðurinn þannig úr
garði gerður að ógemingur væri að
hafa sama fyrirkomulag á rekstrinum
eins og þeir geta gert hjá Digital þar
sem sérfræðingar eru nánast jafn-
margir og smáatriðin,“ segir Gísli.
En þótt nú sé mikil áhersla lögð á
heildarlausnir fyrirtækja og stofnana
er ljóst að einnig verður mikil aukning
í sölu einmenningstölva og jaðarbún-
aðar, s.s. fyrir heimili og einstakl-
inga. Þar sjá menn fyrir sér mikinn
vöxt og að lögð verði mikil rækt við
framboð á tölvubúnaði og þjónustu.
Örtölvutækni mætir þessu með
verslun sinni í Skeifunni og þeirri
þjónustu sem nefnist Örskot og þekkt
er orðin. í versluninni er á boðstólum
búnaður frá fyrirtækjum eins og Digi-
tal, Tulip, Hewlett-Packard og Bor-
land, svo nokkrir séu nefndir.
nashuatec
★ Mest seldu
Ijósritunarvélar á íslandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Umboö Hljómver, Akureyri
Póllinn, Ísafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
62