Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 64
STARFSMANNAMAL
Golfferðir njóta vinsælda um páskana.
STARFSMANNAMÁL:
BATTERIIN HLAÐIN
IFRÍIUM PÁSKANA
I kaffistofum flestra fyrir-
tækja landsins fara nú fram um-
ræður um páskafríið og hvernig
starfsmenn hyggist eyða því.
Við stjórnun fyrirtækja skyldu
menn ekki vanmeta frí eins og
páskafríið. Fátt er fyrirtækjum
nauðsynlegra en að starfsmenn
hlaði batteríin, eins og það er
kallað, og komi fullir af krafti og
nýjum hugmyndum til vinnu eft-
ir fríið.
Raunar er það eitthvað að aukast
að þeir, sem eiga þess kost, lengi
TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
Töluverð ásókn er í safaríferð til
Túnis.
páskafríið með því að taka sér frí dag-
ana þrjá á undan páskafríinu. Þannig
ná þeir tíu daga fríi en missa aðeins
þrjá virka daga úr vinnu.
Það var mál þeirra, sem leitað var
til og starfa að ferðamálum, að tími
starfsmannahópa til utanlandsferða,
sem og árshátíðaferða innanlands,
væri á haustin. Um páska væri meira
um fjölskyldufólk á ferðinni. Vinsælir
ferðamannastaðir undanfarin ár eru á
dálitlu undanhaldi vegna sóknar nýrra
staða inn á markaðinn þótt ýmsar
borgir í Evrópu njóti sívinsælda og má
nefna Dublin í því sambandi.
64