Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 36
^jjjjj^jjjj^^^^^^^^^^^^^^^^jjjjjjjjjjjjjjjj^ LÍFEYRI$IVIÁLi
HANN SIGRAÐI
Helgi G. Þórðarson verkfræðingur hefur brotið ísinn. Nú liggur fyrir dómur
skuligera mun á hlutafélögum eða einyrkjum, sjálfstæðum atvinnurekendum,
lífeyrissjóði. 6% frægu eru orðin frádráttarbær hjá einyrkjum!!
elgi Guðjón Þórðarson verk-
fræðingur hefur haft sigur yfir
ríkinu í ágreiningi um það
hvort greiðsla einyrkja í lífeyrissjóð,
sex prósenta hluti atvinnurekandans
eða Helga sjálfs, sé frádráttarbær frá
skatti eða ekki. Helgi hefur talið svo
vera og talið fram samkvæmt því.
Hann hefur þó fengið athugasemdir
frá skattayfirvöldum og kært til yfir-
skattanefndar og síðan dómstóla. Ár-
ið 1995 hafði hann sigur fyrir héraðs-
dómi en þá ákvað fjármálaráðherra að
áfrýja til Hæstaréttar. í desember
1996 lá svo niðurstaða Hæstaréttar
fyrir. Rétturinn staðfesti dóm hér-
aðsdóms, niðurstaðan var Helga í
hag.
Eftir úrskurð yfirskattanefndar var
Helgi lengi tvístígandi um það hvort
hann ætti að fara í mál gegn ríkinu og
segir hann að þar hafi margt komið til.
Það hafi varla verið í verkahring ein-
staklings að fara í mál, sem snerti
slíkan fjölda manna, auk þess sem út-
gjöld hefðu getað orðið talsverð.
Löngum hafi verið litið svo á að dóm-
stólar væru vilhallir hinu opinbera og
dómar féllu gjaman því í vil. Nú hefur
annað komið á daginn og segist Helgi
telja að par komi til ótti við málarekst-
ur fyrir mannréttindadómstóli í
Evrópu. Ekkert skal um það fullyrt en
ljóst er að Helgi stóðst ekki mátið og
kærði úrskurð yfirskattanefndar fyrir
dómstólum.
„Menn vildu ekki hreyfa við þessu
því að þeir töldu sig ekki hafa hreint
mjöl í pokahominu. Það sætti ég mig
Hæstiréttur hefur stadfest med afar athyglisverdum dómi ad framlag
atvinnurekenda í eigin lifeyrissjód, 6% frægu, falli undir rekstrarkostnad þeirra.
Þar af leidir að iðgjöld einyrkja í lífeyrissjóði, bæði 4% hlutur þeirra sem launþega
og 6% hlutur þeirra sem atvinnurekenda, eru að fullu frádráttarbær frá skatti.
Þetta er tímamótadómur. Helgi sigraði ríkid!!
*.
I\
f \
'*§
* M *i
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON OG FL.
36