Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 65
Þeir eru í forsvari fyrir hlutafélagið um Birgi Leif Hafþórsson. Frá vinstri: Eysteinn Helgason: forstjóri Plastprents,
Stefán Gunnarsson, múrarameistari og eigandi Húsafls, Gunnar Þorláksson, annar eigenda Byggingarfélags Gunnars
og Gylfa, Bjarni Jónsson, hjá fyrirtækinu Perlupappír, og Rúnar Gíslason, lögfræðingur og einn eigenda Lögskipta. Á
myndina vantar Jónas Aðalsteinsson lögfræðing en hann situr í varastjórn félagsins. Þeir Stefán og Bjarni voru í hinu
fræga Valsliði fyrr á árum sem gekk undir heitínu „Mulningsvélin“. Eysteinn var í Víking og Rúnar í Fram.
vallt þegar efnilegir íþrótta-
menn koma fram á sjónarsvið-
ið á íslandi eru bundnar mikl-
ar vonir við árangurinn og jafnan gerð-
ar miklar kröfur til viðkomandi. I flest-
um tilfellum verður þó lítið úr vænt-
ingunum, vegna þess að íslenskir
íþróttamenn hafa ekki tækifæri til að
standa jafnfætis erlendum keppinaut-
um sínum sem geta tekið framförum í
krafti íjármagns og betri æfingaað-
stöðu. Áberandi er hér á landi að ís-
lenskir íþróttamenn hafa þurft að sæta
því að sitja eftir vegna þessa.
Nýverið var þó gefið fordæmi sem
gæti breytt algjörlega forsendunum
fyrir efnilega íslenska íþróttamenn.
Birgir Leifur Hafþórsson er ungur og
efnilegur golfleikari sem sýndi óvé-
fengjanlega hæfileika á síðasta lands-
móti í golfi þar sem hann tryggði sér
íslandsmeistaratitilinn. Hópur fjár-
sterkra einstaklinga úr íslensku flár-
hagslífi hafði tekið eftir hæfileikum
pilts og hrinti af stað hlutafjárútboði til
að styrkja Birgi Leif til keppni í at-
vinnumennsku. Bjarni Jónsson hjá
Stofnað hefur verið fyrirtæki utan
/
um Islandsmeistarann ígolfi, Birgi
LeifHafþórsson, og hrint afstað
hlutafjárútboði. Stefnt er að 15
milljóna króna hlutafé og 50 hlut-
höfum. Þetta er i fyrsta sinn sem
efnt er til hlutafjárútboðs í kringum
íþróttamann á Islandi.
fyrirtækinu Perlupappír er einn þeirra
sem stendur að hlutaijárútboðinu.
„Hlutafjárútboðið var fyrst og
fremst byggt upp með arðsemisleg
sjónarmið í huga þannig að hluthafar
hafi í það minnsta einhveija hagnaðar-
von. Þetta dæmi er óþekkt stærð hjá
okkur og er eðlilega svolítið ævintýri.
Á þessari stundu erum við 33 hluthaf-
arnir, en stefnum að tölunni 50 og ætl-
um að vera búnir að ná henni innan 10
daga. Hlutaféð er 15 milljónir króna.
Samningurinn gengur út á að hluthaf-
arnir fái ákveðna upphæð af vinnings-
fé ásamt auglýsingatekjum. Sam-
kvæmt honum megum við nota Birgi í
allar auglýsingar sem við viljum.
Samningurinn er til ijögurra ára þar
sem hann er á launum hjá okkur. Síð-
an er íjögurra ára óráðstafað tímabil
þar á eftir þar sem við höfum for-
kaupsrétt.
Þegar við fórum að sökkva okkur
niður í þetta dæmi, þá höfðum við til
hliðsjónar fyrirmyndir erlendis frá.
Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem
stofnað er til hlutafjárútboðs á Islandi
65