Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 49

Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 49
Með mynd af föður sínum og stofnanda Heklu, Sigfúsi Bergmann Bjarna- syni, í baksýn. Sigfús Bergmann var ættaður úr Húnaþingi. Hann yfirgaf sveitina ungur maður, hélt suður og haslaði sér völl í verslun og viðskipt- um. Guðrúnar af fyrra hjónabandi, Aðal- stein Norberg f. 1961, þannig að systkinin eru sjö alls. Fjölskyldur af þessari stærð eru sjaldgæfar á íslandi í dag og sérlega skemmtilegt að í til- felli Sigfúsar er fjölskyldan saman í starfi og leik. Guðrún, eiginkona Sig- fúsar, stofnaði snyrtivörufyrirtæki fyrir nokkrum árum, ásamt eldri dætrum þeirra hjóna. Þær mæðgur flytja inn og selja hágæðasnyrtivörur frá Japan, Kanebo, og hafa þannig skapað sér sinn starfsvettvang í við- skiptalífinu á íslandi. Sigfús Ragnar á orðið þrjú bamaböm og þar á meðal ungan alnafna sem er f. 1993 og er sonur Sigfúsar Bjama og Unnar Páls- dóttur. Sigfús er sagður umhyggju- samur uppalandi og strangur faðir en réttsýnn. Það er samdóma álit allra, sem hann þekkja, að fjölskyldan sé honum afar mikilvæg og að hann sé mikill fjölskyldumaður í besta .skiln- ingi þess orðs. NÁM í SVISS OG BANDARÍKJUNUM Námsferill Sigfúsar er að því leyti óvenjulegur að eftir að hann lauk hefðbundnu skyldunámi hér heima fór hann í skóla til Sviss og nam við Insti- tute Montana árin 1959 til 1963. Það- an fór hann í University of Wisconsin í Bandaríkjunum og lauk þaðan prófi í viðskiptafræði árið 1967. Það var fyrst og fremst ákvörðun föður Sig- fúsar að senda hann utan til náms. Hann ætlaði syni sínum ákveðna hluti og ól hann upp til að starfa í því fyrir- tæki sem hann hafði sjálfur stofnað. Eftir að námi lauk starfaði Sigfús hjá íslenska álfélaginu 1967-1973, lengst af sem innkaupastjóri. Hann var starf- andi hjá P. Stefánsson bílaumboðinu frá 1973-1980 og ffamkvæmdastjóri Heklu frá 1980 og síðan forstjóri þess fyrirtækis síðustu fimm árin. Sigfús er vakinn og sofinn í sínu starfi og sinnir því af kostgæfni. Hann er árris- ull, mætir jafnan snemma á morgnana og vinnur eins lengi og honum þykir þurfa. Á sumrin, þegar þölskyldan dvelur í sumarbústað sínum austur í Grímsnesi, fer hann af stað eld- snemma í morgunsárið og telur ekki eftir sér að aka þennan vegarspotta. GLAÐLYNDUR 0G HREINSKIPTINN Sigfús er glaðlyndur og hressilegur ....... • . .. • • .... m • • ... ■ • - . í viðmóti og gerir engan mannamun hvað framkomu við annað fólk varðar. Hann hefur jafnan spaugsyrði á vör- um og skapar þannig jákvætt and- rúmsloft hvar sem hann fer. Hann er hreinskiptinn og opinn. Einn vina hans segir að Sigfús komist upp með að segja hluti sem engir aðrir þori að láta flakka. Hann þótti harður sölu- maður meðan hann var beinlínis í því fagi og það mótar framgöngu hans ennþá. Sumir kunningjar hans segja að hann sé bókstaflega alltaf að selja og finnst framkoma hans stundum óþarflega „amerísk" - hvemig svo sem nákvæmlega ber að skilja það. Sigfús vill hafa líf og fjör í kringum sig, hann segir oft brandara og sögur af fólki og heyrst hefur að hann banni vinum sínum að hringja í sig nema að þeir hafi frá einhverju skemmtilegu að segja. Hann er ör og duglegur en skjótráður á köflum. Komi góð hug- mynd til tals á hann það til að þrífa símann og hrinda hlutunum í fram- kvæmd með tiltölulega stuttum fyrir- vara. Þeir, sem þekkja Sigfús vel, segja að hann nálgist allt lífið eins og viðskipti þar sem ákjósanlegast sé að ná sem bestum samningum á sem skemmstum tírha. RÆKTAR SKÓG EN VEIÐIR EKKILAX Sigfús Ragnar er frímúrari sem verður að teljast til félagsstarfa. Reyndar fer nú tvennum sögum af fundarsókn hans í Frímúrarareglunni en félagsmál virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá forstjóra Heklu. Þó hef- ur hann starfað töluvert á vettvangi Bflgreinasambandsins, en þar sat hann í stjóm og var formaður árum saman. Einnig hefur hann starfað inn- an íslenskrar verslunar. Að öðru leyti eiga starfið og fjölskyldan hug hans allan. Nánir samstarfsmenn Sigfúsar til margra ára og góðir kunningjar em Stefán Sandholt sölustjóri Heklu og Hrafnkell Gunnarsson fjármálastjóri Heklu. Þennan sama flokk fylla þeir Finnbogi Eyjólfsson, sem hefur starf- að manna lengst hjá Heklu og Marinó Bjömsson sölustjóri. Fyrir utan systkini Sigfúsar eru Bjöm Magnús- son, fyrrverandi starfsfélagi, og Jón Birgir Jónsson, svili Sigfúsar og ráðu- neytisstjóri í samgönguráðuneytinu, og Birgir Rafn Jónsson, einnig svili Sigfúsar, og forstjóri og eigandi Magnúsar Kjaran og fráfarandi for- maður félags íslenskra stórkaup- manna, meðal hans nánustu vina. Þeir Jón Birgir, Sigfús og Birgir Rafn eru kvæntir systrum og mikill sam- gangur á milli fjölskyldnanna í þau 30 ár sem liðin em frá því að þær tengd- ust. Fjölskyldur þeirra Jóns Birgis og Sigfúsar eiga sumarbústaði hlið við hlið í landi Snæfoksstaða í Grímsnesi, rétt við Vaðnes. Þama renna Hvítá og Sog saman og náttúrufegurð er 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.