Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 68
AUGLYST MEB
EINKANÚMERUM
Stöðugt fleiri nota einkabílnúmer til að auglýsa nöfn fyrirtækja eða vörur. Sjá
má númer eins og Orkan, Jöfur, Bónus, Hekla, Frón, Egils og Thule. Arni
Johnsen áþó Island!
að færist í vöxt að fyrirtæki
noti einkanúmer á bifreiðar
sínar sem nokkurs konar aug-
lýsingar. Dæmi um þetta eru áletran-
ir eins og CAT, TUBORG, HEKLA,
COKE. Með þessu slær viðkomandi
fyrirtæki tvær flugur í einu höggi.
Eignast bílnúmer sem getur fylgt
fyrirtækinu þrátt fyrir breytilega bfla-
eign og vekur athygli á sér og sinni
starfsemi í leiðinni. Þetta nýtur vax-
andi vinsælda því þetta þykir ódýr
auglýsing.
Einkanúmer hafa notið vaxandi vin-
sælda en frá því að farið var að úthluta
þeim á síðasta ári hefur verið úthlutað
um 550 númerum. Númerunum er
úthlutað eftir ákveðnum kúnstarinnar
reglum sem eru á þá leið að númerið
skal vera 2-6 bókstafir eða tölustafir.
Ekki má nota tákn eins og$, %, & eða
greinarmerki eins og -, !, ?.
Fyrir númerið þarf að greiða
25.000 krónur í svokallað réttinda-
gjald sem er í rauninni leiga til 8 ára
því ekki er verið að selja mönnum
númerið í eiginlegri merkingu heldur
réttinn til þess að nota það. Að átta
árum liðnum þarf því að greiða 25
þúsund krónur eða ígildi þeirra aftur.
Réttindagjaldið rennur til Umferðar-
ráðs. Að auki þarf að greiða 3.750
krónur í skráningargjald. Sé númerið
fært milli bfla þarf að greiða skráning-
argjald, 3.750 krónur í hvert sinn.
Ekki er leyfilegt að nota einkanúmer á
myndir: geir ólafsson mmmmmmm
Bjórauglýsing? Einkanúmerið Tu-
borg er á rauðri Mözdu.
Hekla. Ekki fer á milli mála hvaða
fyrirtæki á þetta númer.
bifreiðir með rauðum númerum sem
eru undanþegnar virðisaukaskatti.
Þess vegna eru auglýsinganúmer al-
geng á forstjórabflum og flutningabfl-
um sem ekki fá rauð númer.
Ekki má selja einkanúmer heldur
verða þau ávallt að fylgja kennitölu
þess sem fékk því úthlutað. Þó eru
ákvæði sem heimila að númer skipti
um eigendur en þá þarf það að hafa
legið inni í eitt ár hið minnsta. Hið
sama á við þegar átta ára leigutími
rennur út. Endumýi handhafi ekki
leigurétt sinn fellur hann úr gildi eftir
ár.
Skráningarstofan hf. úthlutar
einkanúmerum og þangað þarf að
senda umsóknir um þau. Hægt er að
sækja um númerin á skoðunarstöðv-
um fyrir bifreiðar sem sendir þær
áfram til Skráningarstofunnar. Skrán-
ingarstofan varð til í byrjun febrúar
síðastliðins þegar starfsemi Bifreiða-
skoðunar íslands var skipt í tvennt til
að uppfyfla ákvæði Samkeppnisstofn-
unar. Karl Ragnars, áður forstöðu-
maður Bifreiðaskoðunar, er fram-
kvæmdastjóri Skráningarstofunnar
hf. Eins og í Bifreiðaskoðun er hið
opinbera stór hluthafi í Skráningar-
stofunni, mun eiga 51%, enda fer
fyrirtækið með ákveðið stjórnsýslu-
hlutverk.
„SIÐGÆÐISNEFND" HEFUR
HAFNAÐ ÞREMUR
En kálið er ekki sopið þótt í ausuna
sé komið og búið að senda inn um-
sókn. Samkvæmt reglugerð meta
starfsmenn Skráningarstofunnar hf.
það hvort áletrun á umsóttu númeri
bijóti í bága við almennt siðgæði eða
sé meiðandi á einhvem hátt og er
henni þá hafnað. Á eyðublaðinu eru
ennfremur aðvaranir um að umsækj-
andi kunni með umsókn sinni að
ganga á rétt annarra skráðra vöru-
merkja t.d. og honum bent á ábyrgð
sína í því máli. Á þetta hefur ekki
68