Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 65

Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 65
Þeir eru í forsvari fyrir hlutafélagið um Birgi Leif Hafþórsson. Frá vinstri: Eysteinn Helgason: forstjóri Plastprents, Stefán Gunnarsson, múrarameistari og eigandi Húsafls, Gunnar Þorláksson, annar eigenda Byggingarfélags Gunnars og Gylfa, Bjarni Jónsson, hjá fyrirtækinu Perlupappír, og Rúnar Gíslason, lögfræðingur og einn eigenda Lögskipta. Á myndina vantar Jónas Aðalsteinsson lögfræðing en hann situr í varastjórn félagsins. Þeir Stefán og Bjarni voru í hinu fræga Valsliði fyrr á árum sem gekk undir heitínu „Mulningsvélin“. Eysteinn var í Víking og Rúnar í Fram. vallt þegar efnilegir íþrótta- menn koma fram á sjónarsvið- ið á íslandi eru bundnar mikl- ar vonir við árangurinn og jafnan gerð- ar miklar kröfur til viðkomandi. I flest- um tilfellum verður þó lítið úr vænt- ingunum, vegna þess að íslenskir íþróttamenn hafa ekki tækifæri til að standa jafnfætis erlendum keppinaut- um sínum sem geta tekið framförum í krafti íjármagns og betri æfingaað- stöðu. Áberandi er hér á landi að ís- lenskir íþróttamenn hafa þurft að sæta því að sitja eftir vegna þessa. Nýverið var þó gefið fordæmi sem gæti breytt algjörlega forsendunum fyrir efnilega íslenska íþróttamenn. Birgir Leifur Hafþórsson er ungur og efnilegur golfleikari sem sýndi óvé- fengjanlega hæfileika á síðasta lands- móti í golfi þar sem hann tryggði sér íslandsmeistaratitilinn. Hópur fjár- sterkra einstaklinga úr íslensku flár- hagslífi hafði tekið eftir hæfileikum pilts og hrinti af stað hlutafjárútboði til að styrkja Birgi Leif til keppni í at- vinnumennsku. Bjarni Jónsson hjá Stofnað hefur verið fyrirtæki utan / um Islandsmeistarann ígolfi, Birgi LeifHafþórsson, og hrint afstað hlutafjárútboði. Stefnt er að 15 milljóna króna hlutafé og 50 hlut- höfum. Þetta er i fyrsta sinn sem efnt er til hlutafjárútboðs í kringum íþróttamann á Islandi. fyrirtækinu Perlupappír er einn þeirra sem stendur að hlutaijárútboðinu. „Hlutafjárútboðið var fyrst og fremst byggt upp með arðsemisleg sjónarmið í huga þannig að hluthafar hafi í það minnsta einhveija hagnaðar- von. Þetta dæmi er óþekkt stærð hjá okkur og er eðlilega svolítið ævintýri. Á þessari stundu erum við 33 hluthaf- arnir, en stefnum að tölunni 50 og ætl- um að vera búnir að ná henni innan 10 daga. Hlutaféð er 15 milljónir króna. Samningurinn gengur út á að hluthaf- arnir fái ákveðna upphæð af vinnings- fé ásamt auglýsingatekjum. Sam- kvæmt honum megum við nota Birgi í allar auglýsingar sem við viljum. Samningurinn er til ijögurra ára þar sem hann er á launum hjá okkur. Síð- an er íjögurra ára óráðstafað tímabil þar á eftir þar sem við höfum for- kaupsrétt. Þegar við fórum að sökkva okkur niður í þetta dæmi, þá höfðum við til hliðsjónar fyrirmyndir erlendis frá. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem stofnað er til hlutafjárútboðs á Islandi 65

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.