Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Page 22

Frjáls verslun - 01.07.1997, Page 22
FORSIÐUEFNI □ að hefur vakið athygli hvað Opin kerfi hafa fiárfest mikið í öðrum tölvufyrirtækjum á undanförnum misserum, meðal annars keypt meirihlutann í Skýrr hf. Ymsum finnst sem útþensla fyrirtækisins sé of mikil og að það færist of mikið í fang. „Ég tel ekki svo vera. Við færum ekki út í þessar fjárfest- ingar nema við teldum þær arðbærar og styrkja Opin kerfi. Stefna Opinna kerfa skiptist í þijú svið. Eitt þeirra er að fyrirtækið sé fjárfestir á sviði upplýsingatækni. Þar þurfa tvö skilyrði að vera uppfyllt. I fyrsta lagi að fjárfest sé í fyrirtækjum sem tengjast starfsemi okkar og þarf sú fjárfesting að skila hagnaði. I öðru lagi er æskilegt að ijárfestingin stuðli að útbreiðslu búnað- ar frá okkur. Fjárfestingar okkar á und- anförnum misserum eru því samkvæmt skilgreindri stefnu okkar. Um það hvort fjárfestingar Opinna kerfa séu svo miklar að fyrirtækið sé byqað að drottna yfir markaðnum - þá vísa ég því til föðurhúsanna. Samkeppn- in er afar hörð á tölvumarkaðnum, ekki síst á milli fjögurra stærstu fyrirtækj- anna; Tæknivals, Nýherja, EJS og Op- inna kerfa. Við erum bæði með minni veltu og færri starfsmenn en keppinaut- ar okkar. Opin kerfi eru með um 35 starfsmenn, Nýheiji og EJS (Einar J. Skúlason) eru með í kringum 130 starfs- menn ogTæknival er með yfir 200 starfsmenn. Opin kerfi eru því með mun færri starfsmenn en helstu keppinautarnir. Við getum í besta falli reiknað okkur upp í kringum 130 starfs- menn út frá eignarhlut okkar í öðrum félögum.” - Þú vísar í stefhu Opinna kerfa. Hver er hún? „Stefna Opinna kerfa er þríþætt. í fyrsta lagi að reka öfl- uga heildsölu og dreifingu á hágæðabúnaði, aðallega Hew- lett Packard vörum. Endursöluaðilar okkar eru nú yfir 50 talsins út um allt land. í öðru lagi að reka öfluga söludeild sem sinnir fyrst og fremst stofnunum og stærri fyrirtækjum, þ.e. hlutverk hennar er fyrst og fremst að selja og þjónusta stærri kerfi. Undirstaðan undir báðar þessar deildir er öflug þjónustudeild en við höfum ætíð lagt mikla áherslu á þjón- ustuþáttinn. Þetta er kjarninn í stefnunni. Þetta eru Opin kerfi! 1 þriðja lagi eru svo Opin kerfi ijárfestir á sviði upplýsinga- tækni, eins og við höfum áður vikið að. Það, sem við getum gefið fyrirtækjum á sviði upplýsingatækni, fyrir utan íjárhags- legan styrk, er miðlun þekkingar á sviði rekstrar, ekki síst í sölu, bókhaldi og þjónustu.” - Víkjum að kaupum ykkar á Skýrr hf. þar sem þið keypt- uð 51% hlut á 161 milljón króna og buðuð hærra verð en aðrir. A hvað ætíið þið að leggja áherslu hjá Skýrr? „Skýrr eru öflugt fyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þar starfa um 120 manns og áætluð velta þessa árs er um 900 millj- ónir króna. Þegar hefur orðið mikill viðsnúningur á fyrirtæk- inu. Það tapaði 70 milljónum allt árið í fyrra en hagnaður fyrstu sex mánuði þessa árs var um 23 milljónir króna. Það FÆRIST ÞIÐ 0F MIKIÐ í FANG? M í W . V " $ % \ ' j Xx:') „Þessar fjárfestingar styrkja Opin kerfi.“ þýr mikið í þessu fyrirtæki. Þarna er umfangsmikil þekking fyrir hendi og fyrirtækið þjónar traustum hópi viðskiptavina. Tekjur Skýrr koma frá sölu á hugbúnaði - eins og Aggresso - vinnu við breytingar á hugbúnaði, keyrslu stórverkefna fyrir ríkisstofnanir og stórfyrirtæki - og síðast en ekki síst sjáum við stóraukna möguleika á því að leigja út tölvur og tölvukerfi til fyrirtækja og sjá um rekstur þeirra. Um helmingur starfsmanna Skýrr vinnur að gerð hugbúnaðar, bæði fyrir ríki og borg. Það er engin ástæða til að ætla annað en þessi hugþúnaðardeild geti líka unnið fyrir einkageirann - núna þegar fyrirtækið hefur tækifæri til að keppa á því sviði. Þar munu þekking og reynsla starfsmanna nýtast vel, enda eru mörg af stærstu tölvukerfum landsins hönnuð af Skýrr.” - Þú minnist á útíeigu tölva og tölvu- kerfa. Flest stór tölvufyrirtæki eru að setja þetta í stefnu sína. Hvernig munu Skýrr standa að þessu? „Hjá Skýrr er þegar fyrir hendi öflug rekstrar- og þjónustudeild sem rekur tölvukerfi fyrir ýmsa aðila. Fyrirtækið býður því nú þegar þessa þjónustu. En þessi útleiga getur verið í formi móður- tölvu sem staðsett er hjá Skýrr en hún getur líka verið í formi tölvukerfa sem eru úti hjá notendum. Mörg fyrirtæki líta svo á að kostnaðurinn við einkatölvu- netin (PC-netin), sem þau kaupa, sé of hár og að of mikil vinna fari í það að halda utan um þau, jafnvel þurfi að ráða til þess sérstakan starfsmann sem sinni engu öðru. I þeim efnum er talað um einn starfsmann á 20 til 30 einkatölvur. Auk þess koma hlutir eins og afritataka, öryggismál og svo framvegis. Þarna held ég að Skýrr geti sótt fram, til dæmis boðið við- skiptavinum að Skýrr ættu allan búnaðinn - og leigðu fyrir- tækjum hann i heilu lagi. Jafnframt tryggðu Skýrr alla þjón- ustu, stöðugan aðgang að búnaðinum, reglubundna upp- færslu í nýjustu vélar, afritatöku, eftirlit allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar, og svo framvegis. Með neteftirlitstölvu, sem Skýrr tengdu við tölvunetið, sæist til dæmis hvort einhver reyndi að bijótast inn í kerfið í viðkomandi fyrirtæki.” -1 stefnu ykkar segir að fjárfestingar Opinna kerfa verði að skila arði - og æskilegt sé að þær útbreiði tölvur og bún- að frá Opnum kerfúm. Samiýmast þessi markmið? Má ekki skilja þetta sem svo að Skýrr séu of bundnar af ykkur í kaup- um á tölvubúnaði í stað þess að geta boðið þau kaup út? „Ég tel það ekki endilega þurfa að vera. Hewlett Packard er núna orðið annað stærsta tölvufyrirtæki í heimi og leiðandi á mörgum sviðum tölvubúnaðar. Það er engin tilviljun. Þá telj- um við að Hewlett Packard sé mest selda einstaka tölvumerk- ið hérlendis og það sé heldur engin tilviljun. Opin kerfi eru því fyllilega samkeppnisfær - og rúmlega það - við önnur tölvufyr- irtæki. Ég tel að viðskipti við Opin kerfi muni því frekar bæta hag Skýrr en hið gagnstæða. Hins vegar finnst mér - í ljósi þess að Opin kerfi eru meirihlutaeigandi í Skýrr - að fyrirtæk- ið eigi, að öðru jöfnu, að eiga viðskipti við Opin kerfi. Ég segi 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.